Íslandsdeild Amnesty International stendur að málþingi um stöðu kvenna í Mexíkó, þriðjudaginn 30. nóvember í Lögbergi, Háskóla Íslands, stofu 101, frá kl. 12 til 13. Claudia Ashanie Wilson, héraðslögmaður og varaformaður Íslandsdeildar Amnesty International, leiðir málþingið. Sérstakir gestir málþingsins eru Wendy Andrea Galarza, feministi og baráttukona, og Edith Olivares Ferreto, framkvæmdastjóri Amnesty International í Mexíkó. Heimsóknin er hluti af árlegri, alþjóðlegri herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi.