Þitt nafn bjargar lífi: Þátttakendur í gleðigöngu sýknaðir
Hópur fólks í tækniháskólanum METU í Ankara í Tyrklandi var sýknaður þann 8. október sl. fyrir þátttöku í gleðigöngu í háskólanum í maí 2019. Árið 2020 var málið hluti af árlegri herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi. Um heim allan gripu 445.000 einstaklingar til aðgerða og kröfðust sýknunar. Amnesty International fagnar þessum sigri þótt málaferlin hefðu aldrei átt að eiga sér stað.

