Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International 2021
Aðalfundur Amnesty International verður haldinn miðvikudaginn 17. mars 2021 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Aðalfundur Amnesty International verður haldinn miðvikudaginn 17. mars 2021 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Nýverið höfum við fengið tvær góðar fréttir sem tengjast okkar árlegu herferð Þitt nafn bjargar lífi. Khaled Drareni, blaðamaður frá Alsír, er nú laus úr haldi með skilyrðum. José Adrián, sem var aðeins 14 ára þegar hann var beittur lögregluofbeldi í Mexíkó, hefur nú fengið skaðabætur frá ríkinu um fimm árum síðar. Mál hans var hluti af herferðinni árið 2019 þar sem krafist var réttlætis fyrir hans hönd.
Þann 8. febrúar var Luis Alberto González López hótað og gert að yfirgefa heimili sitt í borginni Barrancabermeja innan 72 tíma. Að öðrum kosti yrði hann skotmark vopnaða hópsins ELN. Luis er varaforseti FEDEPESAN, náttúruverndarsamtaka á Magdalena Medio- svæðinu í miðhluta Kólumbíu. Frá því í september 2020 hafa vopnaðir hópar sent ógnandi skilaboð til meðlima samtakanna.
Í lok maí 2020 handtók lögreglan í Iowa blaðakonuna Andreu Sahouri í mótmælum Black Lives Matter-hreyfingarinnar þar sem hún var við störf að fjalla um mótmælin. Lögregla spreyjaði piparúða á hana þrátt fyrir að hún hafði ítrekað sagst vera blaðakona. Réttarhöld eiga að byrja í mars.
Þeir sem berjast fyrir mannréttindum eru í mikilli hættu víðssvegar um heiminn. Borgaralegt samfélag liggur undir árás og það blasir við mannréttinda-neyðartilfelli. Þó að það sé ekki nýtt að ríki gagnrýni og ráðist gegn þeim sem benda á mannréttindabrot er stærðargráðan orðin allt önnur. Á þessum tímum upplifum við vaxandi andúð gegn mannréttindum frá valdhöfum. Bæði starf og starfsfólk Amnesty út um allan heim hefur orðið fyrir árásum. Áreitni að hálfu ríkisstjórna, varðhald að geðþótta, ólöglegt eftirlit, jafnvel morð eru dæmi um brögð sem ríki beita til að þagga niður í þeim sem berjast fyrir mannréttindum.
Háteigsskóli og Alþjóðaskólinn á Íslandi eru Mannréttindagrunnskólar ársins 2020 og hlutu nú í febrúar viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í grunnskólakeppni Íslandsdeildar Amnesty International og titilinn Mannréttindagrunnskóli ársins. Þetta er þriðja árið í röð sem skólarnir sigra keppnina hvor í sínum flokkinum. Þá hlutu Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn á Húsavík viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í framhaldsskólakeppni samtakanna.
Loujain al-Hathloul þekkt baráttukona fyrir mannréttindum var leyst úr haldi í gær en hún var í fangelsi í næstum þrjú ár.
Leyniþjónustan í Íran neitar Zeynab Jalalian, íranskri konu af kúrdískum uppruna, um aðgengi að heilbrigðisþjónustu til að þvinga fram játningu frá henni á myndbandi. Zeynab glímir við alvarlegar aukaverkanir eftir að hafa veikst af kórónuveirunni.
Aðgengi að öruggu þungunarrofi er nauðsynlegt til að unnt sé að njóta mannréttinda til fulls. Á síðustu 25 árum hafa fleiri en 50 lönd breytt löggjöf og bætt aðgengi að þungunarrofi.
Þann 17. janúar síðastliðinn var aðgerðasinninn og stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalny handtekinn á flugvellinum í Moskvu. Hann rétt komst lífs af í ágúst 2020 eftir að eitrað var fyrir honum en hann hefur verið að jafna sig í Þýskalandi síðustu 5 mánuði. Hann er samviskufangi og var handtekinn að geðþótta af pólitískum ástæðum.
Eftirtalin félög skora á íslensk stjórnvöld að fullgilda Samning Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum en samningurinn var samþykktur af 122 ríkjum á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York þann 7. júlí 2017. Hinn 24. október sl. höfðu 50 ríki fullgilt samninginn og mun hann því taka gildi í dag, þann 22. janúar 2021.
Þitt nafn bjargar lífi 2020 gekk vonum framar en samtals söfnuðust 70.405 undirskriftir til stjórnvalda á vefsíðu Íslandsdeildar Amnesty International sem er rúmlega það markmið sem deildin stefndi að og er met í fjölda rafrænna undirskrifta á vefsíðunni fyrir þessa árlegu herferð.