Reykjavíkurmaraþon 2019
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á Menningarnótt, þann 24. ágúst næstkomandi.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á Menningarnótt, þann 24. ágúst næstkomandi.
Suður-súdönskum aðgerðasinna á fertugsaldri, Michael Wetnhialic, er haldið í höfuðstöðvum þjóðaröryggisstofnunar ríkisins og meinaður aðgangur að fjölskyldu sinni eða lögfræðingi. Hann var handtekinn að geðþótta af þjóðaröryggisstofnuninni í Juba þann 18. maí síðastliðinn.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar ályktun Íslands í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna vegna stöðu mannréttinda á Filippseyjum. Þetta er í fyrsta skipti í sögu ráðsins sem lögð er fram ályktun um Filippseyjar. Íslensk stjórnvöld sýndu ábyrgð í verki með því að leggja fram ályktunina og þar með fylgja eftir frumkvæði í gagnrýni sinni á filippseysk stjórnvöld.
Amnesty International hvetur starfsfólk TripAdvisor til að krefjast þess að fyrirtækið hætti að græða á stríðsglæpum með skráningum ferðamannastaða og gistingar á landtökusvæðum Ísraels á hernumdu svæðum Palestínu.
Átján ára unglingur, Daniel Zeinolabedini, sem er í haldi í Mahabad-fangelsi í Vestur-Azerbaijan héraði í Íran, á hættu á að vera tekinn af lífi. Hann var dæmdur til dauða fyrir manndráp í júní 2018 eftir ósanngjörn réttarhöld þegar hann var aðeins 17 ára. Aftaka væri alvarlegt brot á alþjóðalögum.
Amnesty International fagnar úrskurði hæstaréttar í Botsvana í júní síðastliðnum um afglæpavæðingu samkynhneigðra sambanda og er það sigur fyrir jafnrétti og frelsi til að fá að elska.
Laugardaginn 13. júlí stendur ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International fyrir Mannréttindamaraþoni. Farin verður um fimm kílómetra löng leið á milli 5 sendiráða í miðborg Reykjavíkur. Við hvert sendiráð verða sjálfboðaliðar frá ungliðahreyfingunni og þar munu hlauparar skrifa undir mál sem snúa að löndum sendiráðanna og hafa þannig áhrif á mannréttindabaráttuna.
Í dag, þann 4. júlí 2019, sendi ungliðahreyfing Amnesty International ásamt ungmennaráði UNICEF á Íslandi, ungmennaráði Barnaheilla og ráðgjafarhóps Umboðsmanns barna frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna brottvísana barna á flótta aftur til Grikklands. Ungmennaráðin skora á yfirvöld að grípa til aðgerða og vernda börn á flótta eins og þeim ber skylda til, sama hvað það kostar.
Áfrýjunardómstóll í Bretlandi kvað upp úrskurð nýverið um að ákvörðun breskra stjórnvalda um að leyfa vopnaútflutning til Sádi-Arabíu væri ólögmæt.
Íbúar Hong Kong hafa af hugrekki mótmælt fyrirhuguðu lagafrumvarpi þrátt fyrir ofbeldi lögreglu. Verði frumvarpið samþykkti eiga íbúar Hong Kong á hættu að verða framseldir til meginlands Kína og sæta þar illri meðferð.
Á alþjóðlegum degi til stuðnings þolendum pyndinga, þann 26. júní, vekur Amnesty International athygli á máli vændisfólks í Dóminíska lýðveldinu sem þurfa að þola pyndingar af hálfu lögreglu. Amnesty International gaf út skýrslu fyrr á þessu ári þar sem skráðar voru sögur 46 vændiskvenna, þeirra á meðal trans kvenna.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar löngu tímabærum lögum um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi í dag. Lögin eru gríðarlega mikilvægt skref í átt að koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks og að tryggja rétt þess bæði í lögum og framkvæmd.