Ársskýrsla Amnesty International um stöðu mannréttinda í heiminum 2023
Amnesty International varar við aðsteðjandi ógn og vendipunkti í alþjóðalögum mitt í svívirðilegum lagabrotum ríkisstjórna og fyrirtækja.
Amnesty International varar við aðsteðjandi ógn og vendipunkti í alþjóðalögum mitt í svívirðilegum lagabrotum ríkisstjórna og fyrirtækja.
Mannréttindalögfræðingurinn Yu Wensheng og kona hans Xu Yan voru færð í varðhald þann 13. apríl 2023 þegar þau voru á leið sinni að hitta sendiherra Evrópusambandsins í Peking í Kína. Hjónin eru bæði þekkt í Kína sem aðgerðasinnar og voru handtekin fyrir að „stofna til deilna“ og „að hvetja til kollvörpunar ríkisvaldsins“. Ári síðar liggur enn ekki fyrir dagsetning á réttarhöldum yfir þeim.
Um langa hríð hefur verið lítið svigrúm fyrir friðsamleg mótmæli og tjáningarfrelsi í Rússlandi en í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu hefur það í raun horfið með öllu. Viku eftir innrásina, í febrúar 2022, innleiddu rússnesk stjórnvöld ritskoðunarlög í þeim tilgangi að brjóta á bak aftur mótmæli gegn innrásinni og stríðinu. Tveimur árum síðar afplánar fjöldi fólks áralanga fangelsisdóma fyrir friðsamlegt andóf gegn stríðinu.
Viku eftir innrásina í Úkraínu, sem var gerð í febrúar 2022, innleiddu rússnesk stjórnvöld ritskoðunarlög í þeim tilgangi að gera mótmæli gegn innrásinni refsiverð. Nú, tveimur árum síðar afplánar fjöldi fólks áralanga fangelsisdóma fyrir friðsamlegt andóf gegn stríðinu.
Hæstiréttur Bretlands hefur staðfest tveggja daga fyrirtöku í máli Julian Assange, dagana 20.-21. febrúar, til að ákvarða hvort að Julian Assange fái fleiri tækifæri til að fara með mál sitt fyrir dómstóla í Bretlandi. Verði ákvörðunin sú að hann hafi fullnýtt rétt sinn til áfrýjunar vegna fyrirhugaðs framsals til Bandaríkjanna er aðeins tvennt í stöðunni. Framsalsferlið til Bandaríkjanna mun hefjast eða Julian Assange leiti til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Rocío San Miguel, þekkt baráttukona fyrir mannréttindum, var handtekin að geðþótta þann 9. febrúar 2024 á flugvellinum í Caracas í Venesúela. Hún sætir þvinguðu mannshvarfi (leynilegu varðhaldi yfirvalda).Þetta er ein af aðferðunum sem hafa verið skráðar sem stjórnvöld beita til að bæla niður andstöðu.
Mannréttindafrömuðurnir og samviskufangarnir Ahmed Mansoor, Mohammed al-Roken og Nasser bin Ghaith eru meðal 87 manna frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem sóttir eru til saka í nýju máli sem byggt er á upplognum ákærum um hryðjuverk.
Anon Nampa, baráttumaður fyrir mannréttindum og lýðræði, hefur hlotið tvo fangelsisdóma fyrir að nýta friðsamlega mannréttindi sín og á yfir höfði sér fjölda ákæra sem gætu leitt til áratugalangrar fangelsisvistar.
Þrátt fyrir grafalvarlega stöðu mannréttinda víða um heim hefur það sannarlega sýnt sig að mannréttindabaráttan leiðir til jákvæðra breytinga. Sigrarnir eru margs konar. Breytingar eru gerðar á löggjöf sem bæta stöðu mannréttinda, einstaklingar sem eru ranglega fangelsaðir fá frelsi á ný og réttlæti nær fram að ganga. Hér má lesa um fjölmarga sigra frá seinni helmingi þessa árs, hvaðanæva að úr heiminum, sem ber að fagna.
Öryggissveitir í Íran nauðguðu og beittu öðru kynferðisofbeldi, sem jafngildir pyndingum og annarri illri meðferð, til að ógna og refsa friðsömum mótmælendum árið 2022 í uppreisninni, „Konur, Líf, Frelsi”, samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International.
Irina Danilovich er hjúkrunarfræðingur og aðgerðasinni frá Krímskaga en svæðið hefur verið hernumið af Rússlandi síðan 2014. Hún er í haldi rússneskra yfirvalda. Hún hefur vakið athygli á vanda innan heilbrigðiskerfisins á svæðinu og opinberlega fordæmt pólitískar ofsóknir gegn mannréttindafrömuðum og aðgerðasinnum. Einstaklingar sem hafa andmælt hernámi Rússlands, ólögmætri innlimun Krímskaga og mannréttindabrotum frá árinu 2014 hafar sætt ofsóknum, ógnunum, fölskum ákærum og þvinguðum mannshvörfum.
Nú þegar yfirvöld í nokkrum Evrópulöndum hafa sett takmarkanir á réttinn til að mótmæla í tengslum við samstöðu með mannréttindum palestínsks fólks kallar Amnesty International eftir því að tjáningarfrelsið sé virt. Fólk á rétt á að koma saman og tjá sig með friðsamlegum hætti.