Úkraína: Spænskur ríkisborgari í haldi Rússa
75 ára spænskur sjálfboðaliði, Mariano García Calatayud, sem sinnti mannúðarstarfi í borginni Kherson í Úkraínu var handtekinn af rússneskum yfirvöldum þann 19. mars 2022.
75 ára spænskur sjálfboðaliði, Mariano García Calatayud, sem sinnti mannúðarstarfi í borginni Kherson í Úkraínu var handtekinn af rússneskum yfirvöldum þann 19. mars 2022.
Tælensk yfirvöld hafa áreitt og sótt börn til saka fyrir að nýta rétt sinn til að mótmæla friðsamlega. Hinsegin aðgerðasinninn Petch (Thanakorn Phiraban) hefur hlotið fangelsisdóm, réttarhöld standa yfir í máli Sand sem er 17 ára gömul og rannsókn stendur yfir í máli yfir Yok (Chan Tonnamphet), 15 ára aðgerðasinna fyrir réttindum frumbyggja í Tælandi.
Stjórnarandstæðingar, aðgerðasinnar, lögfræðingar og viðskiptamenn hafa sætt sakamálarannsóknum í Túnis síðan í febrúar 2023 vegna tilhæfulausra ásakana um samsæri.
Skólastúlkur hafa verið í forystu mótmæla í Íran og sýnt hugrekki gegn kúgandi lögum um skyldunotkun höfuðslæða með því að taka af sér höfuðslæðuna. Eiturgasi hefur nú verið beitt gegn skólastúlkum á grunnskóla- og menntaskólastigi. Réttur til menntunar, heilsu og lífs er í hættu hjá milljónum skólastúlkna vegna gasárásanna.
Fimm ár eru liðin frá upphafi kúgunarstefnu ríkisstjórnar Níkaragva. Ekki sér fyrir endann á þessari stefnu sem miðar að því að kveða gagnrýnisraddir í kútinn. Enn er verið að víkka hana út og finna nýjar leiðir til að brjóta á réttindum. Þetta kemur fram í skýrslu Amnesty International.
Á alþjóðadegi fjölmiðlafrelsis staðfestir Amnesty International að vel þekkt fjölmiðlakona í Dóminíska lýðveldinu hafi verið skotmark njósnahugbúnaðarins Pegasus frá NSO Group. Þetta er fyrsta staðfesta tilfellið þar í landi. Tæknideild Amnesty International skoðaði síma Nuria Piera og staðfesti að Pegasus-njósnahugbúnaður hefði verið komið fyrir í símann hennar með fullum aðgangi að öllu tækinu á árunum 2020-2021. Piera er rannsóknarfjölmiðlakona sem hefur beint sjónum sínum að spillingu og refsileysi í Dóminíska lýðveldinu á löngum ferli sínum.
Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík í maí næstkomandi kallar Amnesty International eftir sterkari vernd borgaralegra réttinda.
Leyniþjónusta og öryggissveitir í Íran hafa beitt barnunga mótmælendur, allt niður í 12 ára, hrottafengnum pyndingum til að hindra þátttöku þeirra í mótmælum, meðal annars barsmíðum, svipuhöggum, rafstuði, nauðgunum og öðru kynferðisofbeldi.
Kamile Wayit, Úígúri og nemi í Henan í Kína var handtekin af lögreglu þann 12. desember 2022 þegar hún kom heim í frí til Atush í Xikiang héraði.
Yok, 15 ára stúlka, er í gæsluvarðhaldi í Bangkok í Tælandi á grundvelli laga sem banna gagnrýni á konungsríkið í kjölfar þess að hún tók þátt í friðsamlegum mótmælum. Yok tók þátt í mótmælum þann 14. október 2022 þar sem kallað var eftir því að lög sem banna gagnrýni á konungsríkið yrðu felld úr gildi.
Allherjarinnrás Rússlands í Úkraínu árið 2022 leiddi af sér fjölda stríðsglæpa, orsakaði orku- og matvælakrísu á heimsvísu og gróf enn frekar undan veikbyggðu fjölþjóðakerfi. Innrásin afhjúpaði jafnframt hræsni vestrænna ríkja sem brugðust hart við árás Rússlands en létu óátalin eða voru samsek um gróf mannréttindabrot annars staðar. Þetta kemur meðal annars fram í ársskýrslu Amnesty International um stöðu mannréttindamála í heiminum.
Öryggissveitir um heim allan misbeita gúmmí- og plastskotum og öðrum vopnum við löggæslu til að bæla niður friðsamleg mótmæli með ofbeldisfullum hætti og valda skelfilegum áverkum og dauða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International þar sem kallað er eftir strangari takmörkunum með notkun þessara vopna og alþjóðlegum samningi sem kemur böndum á viðskipti með þau.