Ameríka: Leysið flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd úr haldi á meðan heimsfaraldri stendur
„Líf okkar eru í hættu vegna þess að hér hefur fólk greinst með kórónuveiruna og það er ekkert sem við getum gert. Við höfum engar leiðir til að verjast. Þetta er tifandi tímasprengja. Við biðjum fyrir því að einhver geri eitthvað,” segir trans konan Kelly Gonzales sem hefur verið í varðhaldi á vegum innflytjendaeftirlits Bandaríkjanna í tvö og hálft ár.

