Pólland: Bindið enda á baráttuna gegn friðsömum mótmælendum
Í nýrri skýrslu Amnesty International kemur fram að ríkisstjórn Póllands leggur allt kapp á að berjast gegn friðsömum mótmælendum til að koma í veg fyrir frekari mótmæli í landinu.
Í nýrri skýrslu Amnesty International kemur fram að ríkisstjórn Póllands leggur allt kapp á að berjast gegn friðsömum mótmælendum til að koma í veg fyrir frekari mótmæli í landinu.
Palestínskur sirkulistamaður og kennari, Mohamed Faisal Abu Sakha, var sleppt lausum úr Ketziot-fangelsinu í Ísrael þann 30. ágúst. Hann sat nærri tvö ár í varðhaldi án dómsúrskurðar og var aldrei ákærður eða réttað yfir honum. Hann er kominn heim til fjölskyldu sinnar í Jenin á Vesturbakkanum.
Ríkjum sem verja dauðarefsinguna og beita henni fækkar sífellt. Þau ættu að fylgja eftir þróuninni á heimsvísu segir Amnesty International á fimmtánda alþjóðlega baráttudeginum gegn dauðarefsingunni.
Samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International sem kom út í dag, 5. október, hafa ríkisstjórnir Evrópu lagt líf þúsunda Afgana í hættu með því að þvinga þá til að snúa aftur til lands þar sem þeir eiga í hættu á að týna lífi sínu eða sæta pyndingum, mannshvörfum og öðrum mannréttindabrotum.
Íslandsdeild Amnesty International býður þér í útgáfuhóf í Listasafni Íslands sunnudaginn 8. október í tilefni af útgáfu barnabókarinnar IMAGINE – Að hugsa sér. Bókin er unnin í samvinnu við bresku deild Amnesty International en það er bókaútgáfan Orrusta sem gefur bókina út hér á landi í samstarfi við Íslandsdeild Amnesty International.
Mudawi var leystur úr haldi, ásamt fimm öðrum mannréttindafrömuðum þann 29. ágúst. Hann hafði verið ákærður fyrir að „grafa undan stjórnarskránni“ og „heyja stríð gegn ríkinu“. Þessar ákærur hefðu getað leitt til dauðadóms eða lífstíðarfangelsis en hafa nú verið felldar niður.
Rohingjar er minnihlutahópur, aðallega múslimar, sem býr í Rakhine-fylki í vesturhluta Mjanmar við landamæri Bangladess og telja um 1,1 milljón manns. Stjórnvöld í Mjanmar halda því fram að Rohingjar séu hópur af ólöglegum innflytjendum frá Bangladess þrátt fyrir að það hafi búið í Mjanmar í aldaraðir. Þau neita að viðurkenna þá sem ríkisborgara og í reynd er meirihluti þeirra án ríkisfangs.
Þann 10. ágúst síðastliðinn var fjölskyldu Erkin Musaev boðið að mæta á skrifstofu ríkissaksóknara Úsbekistan þar sem henni var tilkynnt að forseti landsins hafi fyrirskipað lausn Erkin úr fangelsi eftir 11 ár á bak við lás og slá.
Það verður mikið um að vera hjá Íslandsdeild Amnesty International um helgina en þá fer Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fram í 34. sinn og Menningarnótt í Reykjavík verður haldin í 22. sinn.
„Allir geta verið jákvæðir í garð Amnesty International því samtökin starfa í þágu fólksins en ekki til að hagnast á því,“ segir hinn 26 ára gamli Majid Zarei frá Íran sem hefur búið á Íslandi í rúmt ár og ætlar að hlaupa 3 km í Reykjavíkurmaraþoninu nú á laugardaginn til styrktar Amnesty International.
Það markaði tímamót þegar úrskurðað var að hinn þriggja ára gamli Josué* skyldi leysa úr haldi úr Berks County Residential Center í Pennsylvaníu í síðustu viku. Hann flúði frá Hondúras með tæplega þrítugri móður sinni vegna hótana um mannrán og líkamlega og kynferðislega árás. Þau sóttu síðan um hæli í Bandaríkjunum og hafa verið í haldi í Berks í rúma 16 mánuði.
Óskar Le Qui Khuu Júlíusson ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu 19. ágúst og safna áheitum fyrir Amnesty International.