Réttlát orkuskipti
Loftslagsbreytingar ógna fjölmörgum mannréttindum á borð við rétt til vatns, heilsu og lífs. Loftslagsváin eykur kerfislægan ójöfnuð og mismunun.
Loftslagsbreytingar ógna fjölmörgum mannréttindum á borð við rétt til vatns, heilsu og lífs. Loftslagsváin eykur kerfislægan ójöfnuð og mismunun.
Það er auðvelt að líta á jörðina okkar sem sjálfsagða þar til við sjáum áhrif loftslagsbreytinga á líf fjölda fólks: hungursneyð, fólksflutninga, atvinnuleysi, sjúkdóma og dauða. Augljós dæmi eru dauðsföll sem tengjast öfgum í veðurfari, eins og ofsastormum, flóðum og gróðureldum. En aðrar ógnir eru ekki eins sjáanlegar.
Þúsundir einstaklinga í Eþíópíu hafa sætt þvinguðum brottflutningum frá heimilum sínum vegna yfirgripsmikilla skipulagsbreytinga stjórnvalda (e. Corridor Development Project) í höfuðborg landsins Addis Ababa og 58 öðrum borgum og bæjum víðsvegar um landið.
Sögulega hefur borgaraleg óhlýðni verið notuð til að vekja athygli á tilteknum málstað og stuðla að samfélagslegum breytingum með beinum hætti, án ofbeldis. Dæmi þar um eru setumótmæli, fjöldafundir og aðgerðir sem ná til fjölmiðla (e. media stunts).
Lögreglu ber skylda til að greiða fyrir opinberu samkomuhaldi ásamt því að vernda rétt einstaklingsins til að mótmæla. Almennt séð skal gera ráð fyrir friðsamlegri samkomu.
Aðgerðasinninn Fidel Zavala var handtekinn í febrúar 2025 og færður í Mariona fangelsið í El Salvador þann 2. apríl. Hann er í haldi fangavarða sem hann hefur áður fordæmt opinberlega vegna pyndinga og annarrar illrar meðferðar á fólki í haldi, sem setur líf hans í hættu.
Ársskýrsla Amnesty International, (e. „State of the World’s Human Rights“), um stöðu mannréttinda í 150 löndum lýsir ógn við áratuga vinnu við að byggja upp og efla algildi mannréttinda um allan heim.
Vidal Brítez var handtekinn þann 26. mars í Paso Yobái, í Guairá-héraði í Paragvæ fyrir að verja réttinn til heilnæms umhverfis. Hann hefur lengi barist gegn mengun á svæðinu. Saksóknari hefur hafið málsókn gegn honum vegna átaka sem brutust út milli nokkurra einstaklinga en hann var ekki á staðnum þegar þau áttu sér stað.er Þessi málsókn beininst því gegn aðgerðastarfi hans.
Frelsi til að kalla eftir breytingum og magna slíkt ákall í fjöldahreyfingu er mikilvægt í opnu, lýðræðislegu og réttindamiðuðu samfélagi.
s
Tjáningarfrelsið er undirstaða lýðræðis og nauðsynlegt aðhald fyrir stjórnvöld. Mikilvægt er að fólk geti tjáð sig óttalaust og án þvingana eða ólögmætra afskipta ríkisvaldsins og þannig notið mannréttinda sinna í opnu og sanngjörnu samfélagi.
Með fræðslu getum við barist gegn mismunun, stuðlað að jafnrétti og virkri þátttöku einstaklinga í lýðræðislegum ákvörðunum samfélagsins og þannig unnið að betri heimi.