Aðskilnaðarstefna Ísraels
Milljónir Palestínubúa búa við kerfisbundna aðskilnaðarstefnu Ísraela og með þessu grimmilega og fordómafulla kerfi er komið í veg fyrir að Palestínubúar eignist heimili.
Milljónir Palestínubúa búa við kerfisbundna aðskilnaðarstefnu Ísraela og með þessu grimmilega og fordómafulla kerfi er komið í veg fyrir að Palestínubúar eignist heimili.
Það verður að draga ísraelsk yfirvöld til ábyrgðar fyrir aðskilnaðarstefnu þeirra gegn palestínsku fólki, segir í nýrri skýrslu Amnesty International. Aðskilnaðarstefnan er glæpur. Skýrslan greinir frá kerfisbundinni kúgun og yfirráðum Ísraels yfir palestínsku fólki hvar sem mögulegt er að hafa stjórn á réttindum þess. Þetta á við um palestínskt fólk sem býr í Ísrael, á hernumdu svæðum Palestínu og palestínskt flóttafólk í öðrum löndum.
Baráttukonan Atena Daemi er laus úr haldi! Mál hennar var partur af herferðinni Þitt nafn bjargar lífi 2018.
Tíu egypskir menn sem tilheyra samfélagi Núbía hafa verið í haldi án ákæru í 16 mánuði frá því í júlí 2020 vegna friðsæls viðburðar sem þeir höfðu skipulagt. Tveir þeirra eru komnir á aldur og þjást af heilsukvillum.
Lögreglumenn réðust á Badr Baabou, baráttumann fyrir mannréttindum og hinsegin aðgerðasinna, í Túnis í október 2021. Hann var skotmark öryggissveita vegna vinnu sinnar og baráttu fyrir réttindum hinsegin einstaklinga í Túnis. Þetta er nýlegasta árásin af mörgum sem Badr hefur orðið fyrir undanfarin ár.
Fanginn Heidar Ghorbani, íranskur kúrdi, á yfir höfði sér aftöku fyrir „vopnaða uppreisn gegn ríkinu” þrátt fyrir ósanngjörn réttarhöld og það að dómurinn yfir honum hafi staðfest að hann hafi aldrei verið vopnaður. Í ágúst 2021 hafnaði hæstiréttur Íran beiðni um endurupptöku. Dómurinn er byggður á þvingaðri játningu.
Nú er undirbúningur hafinn fyrir árlegu alþjóðlegu herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi sem ýtt verður úr vör síðar á árinu. Árið 2020 söfnuðust fjöldi undirskrifta í herferðinni til stuðnings málum tíu þolenda mannréttindabrota. Á Íslandi söfnuðust 70.405 undirskriftir en á heimsvísu var gripið til tæplega 4,5 milljóna aðgerða í heildina. Þessi gífurlegi samstöðumáttur hefur nú þegar skipt sköpum. Okkur hafa borist nokkur gleðitíðindi vegna framfara í málum frá herferðinni í fyrra.
Samkvæmt rannsókn Amnesty International hafa alsírsk stjórnvöld herjað á aðgerðasinna sem hafa nýtt rétt sinn til tjáningar eða friðsamlegra mótmæla fyrir kosningar sem fram fóru þann 12. júní síðastliðinn. Að minnsta kosti 37 aðgerðasinnar voru handteknir með óréttmætum hætti fyrir þátttöku í mótmælum eða gagnrýni á stjórnvöld á tímabilinu 26. mars til 26. maí 2021. Auk þess voru a.m.k. 273 aðgerðasinnar enn í haldi í lok júní 2021.
Ísraelski herinn hefur sýnt að hann ber enga virðingu fyrir lífi óbreyttra palestínskra borgara í loftárásum sínum á íbúðarhúsnæði. Heilu fjölskyldurnar hafa látið lífið, þar á meðal börn, í árásum sem geta talist stríðsglæpir.
Ísraelskar öryggissveitir hafa beitt óhóflegri, endurtekinni og óréttmætanlegri valdbeitingu gegn palestínskum mótmælendum á hernumdu svæðum Austur-Jerúsalem síðustu daga. Átök hafa stigmagnast og flugskeyti milli vopnaðra palestínskra hópa á Gaza-svæðinu og Ísraels hafa sært fjölda fólks og tugir hafa látist. Meirihlutinn af þeim eru Palestínubúar.
Að minnsta kosti 41 kona frá Srí Lanka hefur verið í haldi í Sádi–Arabíu í allt að 18 mánuði. Þrjár konur eru með ung börn með sér og ein kona þarf nauðsynlega á læknisþjónustu að halda. Engin þeirra hefur verið upplýst um ákærur gegn þeim né hafa þær fengið lagalega aðstoð.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að síðastliðinn þriðjudag, þann 23. mars, hafi verið samþykkt ályktun í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda í Íran, sem ríkjahópur undir forystu Íslands lagði fram. Umrædd ályktun tryggir áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til að fylgjast með og upplýsa mannréttindaráðið reglulega um stöðu mannréttinda í Íran.