Síur í notkun

134 niðurstöður

Raða eftir
  • Íran: Hinsegin baráttukona dæmd til dauða

    Hinsegin baráttukonan Zahra Sedighi-Hamadani, 31 árs, og Elham Choubda, 24 ára, voru dæmdar til dauða fyrir „spillingu á jörðu“. Konurnar eru skotmörk stjórnvalda vegna kynhneigðar sinnar, kynvitundar og stuðnings við hinsegin baráttuna á samfélagsmiðlum.  

  • Íran/Tyrkland: Skotið á fólk á flótta frá Afganistan við landamæri

    Íranskar og tyrkneskar öryggissveitir hafa ítrekað þvingað afganskt fólk til að snúa aftur til Afganistan þegar það reynir að fara yfir landamærin í leit að öryggi. Meðal aðferða er að skjóta í átt að fólkinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International, „They don’t treat us like humans“. Einnig er greint frá fjölda tilfella, einkum á írönskum landamærum, þar sem öryggissveitir skutu á fólk þegar það klifraði yfir veggi eða skreið undir grindverk.

  • Egyptaland: Réttað yfir hjónum í neyðarrétti

    Aisha el-Shater, 41 árs dóttir leiðtoga Múslímska bræðralagsins (Muslim Brotherhood), og eiginmaður hennar Mohamed Abo Horeira hafa verið í haldi í rúm þrjú og hálft ár vegna fjölskyldutengsla við bræðralagið og fyrir að nýta mannréttindi sín með friðsamlegum hætti. Mál þeirra er nú fyrir neyðarrétti vegna falskra ákæra.

  • Þitt nafn bjargar lífi: Samviskufangi laus úr haldi í Egyptalandi

    Enn berast góðar fréttir í tengslum við herferð okkar Þitt nafn bjargar lífi. Ibrahim Ezz El-Din, mannréttindafrömuður sem var samviskufangi, var leystur úr haldi í Egyptalandi þann 26. apríl eftir að hafa setið 34 mánuði í fangelsi fyrir mannréttindastörf sín. Hann var aldrei formlega ákærður en var í haldi vegna rannsóknar á því hvort hann „tilheyrði hryðjuverkahópi“. Í 167 daga var honum haldið í leynd þar sem hann sætti pyndingum og fjölskylda hans vissi ekki hvar hann var niðurkominn.  

  • Sádí-Arabía: Stöðvið yfirvofandi aftökur tveggja manna frá Barein

    Jaafar Mohammad Sultan og Sadeq Majeed Thamer eiga yfir höfði sér aftökur. Sérstaki sakamáladómstóllinn dæmdi þá til dauða í október 2021 eftir afar ósanngjörn réttarhöld vegna hryðjuverkatengdra ákæra, sem fela í sér smygl á sprengiefni til Sádí-Arabíu og þátttöku í mótmælum gegn stjórnvöldum í Barein. Í apríl 2022 staðfesti hæstiréttur dóminn og aftaka þeirra varð yfirvofandi um leið og konungur fullgildir hann.  

  • FIFA: Bótasjóður fyrir farandfólk í Katar til jafns við verðlaunafé HM

    Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA þarf að merkja a.m.k. 440 milljónum dollara í úrræði fyrir hundruð þúsundir farandverkafólks sem hafa sætt mannréttindabrotum í Katar í undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu karlalandsliða árið 2022. Þetta kemur fram í skýrslu Amnesty International sem kemur nú út þegar sex mánuðir eru þar til leikarnir hefjast. 

  • Íran: Fangi í lífshættu

    Írönsk stjórnvöld beita Shokrollah Jebeli, 82 ára ástralskan-íranskan fanga, pyndingum með því að neita honum af ásettu ráði um læknisþjónustu og lyf. Í ljósi aldurs og heilsufarsástands ásamt ósanngjörnum réttarhöldum verður að leysa hann úr haldi strax. 

  • Marokkó: Úígúri í hættu

    Idris Hasan, Úígúri sem býr í Tyrklandi, var handtekinn í júlí 2021 í Marokkó vegna þess að hann var eftirlýstur af Interpol. Kínversk yfirvöld skilgreina hann sem hryðjuverkamann vegna starfa sem hann hefur unnið fyrir úígúrísk samtök. Lög í Kína skilgreina hryðjuverk með víðtækum og óljósum hætti og þeim hefur verið beitt til að ofsækja Úígúra og aðra múslimska minnihlutahópa. Þann 15. desember 2021 staðfestu dómstólar í Marokkó framsal Idris Hasan. Hann er enn í varðhaldi og í mikilli hættu að verða framseldur til Kína þar sem hann verður líklega pyndaður og fangelsaður að geðþótta.

  • Barein: Leysið veikan aðgerðasinna úr haldi

    Heilsa Dr. Abduljalil al-Singace er í hættu en hann er á sjöunda mánuði hungurverkfalls. Á sama tíma hefur hann ekki fengið að tala við fjölskyldu sína frá því í nóvember 2021. Dr. Abduljalil al-Singace er aðgerðasinni og fræðimaður frá Barein en hann hefur setið í fangelsi í áratug fyrir friðsæla þátttöku í uppreisninni í Barein árið 2011.