
Þann 26. maí 2016 birti Amnesty International stefnu sína varðandi verndun vændisfólks gegn mannréttindabrotum og misnotkun, ásamt því að birta fjórar rannsóknarskýrslur um stöðu þessara mála í Papúa Nýju-Gíneu, Hong Kong, Noregi og Argentínu.
Landaskýrsurnar má lesa hér: Papúa Nýja-Gínea, Hong Kong, Noregur og Argentína.
Vændisfólk er í aukinni hættu á að verða fyrir margvíslegum mannréttindabrotum þar á meðal nauðgunum, ofbeldi, kúgun og mismunun. „Allt of oft nýtur það engrar eða mjög takmarkaðrar verndar í lögum og hefur litla möguleika á að fá úrlausn mála sinna,“ segir Tawanda Mutasah, sem fer fyrir málefnum laga og stefnumótunar hjá Amnesty International.
Stefna okkar útlistar hvernig stjórnvöld verða að gera meira til þess að vernda vændisfólk gegn brotum og misnotkun. Rannsóknirnar beina athygli að vitnisburði vændisfólks og erfiðleika þess.
Stefna
Stefna Amnesty International var mótuð eftir víðtækt samráð á heimsvísu, vel ígrundaðrar yfirferðar á efnislegum gögnum og alþjóðlegum mannréttindastöðlum auk rannsóknar sem stóð yfir í meira en tvö ár. Útgáfa og formleg innleiðing stefnunnar koma í kjölfar lýðræðislegrar ákvörðunar alþjóðahreyfingar Amnesty International í ágúst 2015, sem víða var greint frá á þeim tíma.
Stefnan hvetur stjórnvöld meðal annars til að tryggja vernd gegn skaða, misneytingu og þvingunum; þátttöku vændisfólks í þróun laga sem hafa áhrif á líf þeirra og öryggi; að bundinn sé endi á mismunun og að öllum sé tryggður aðgangur að menntunar- og atvinnutækifærum.
Stefnan mælir með afglæpavæðingu vændis þar sem liggur fyrir samþykki beggja aðila, þar með talin lög eins og bann við því að falast eftir, kaupa og skipuleggja vændi. Þessi afstaða byggir á gögnum sem benda til þess að slík lög skerði oft öryggi vændisfólks og leiðir til þess að níðingar hljóta ekki refsingu þar sem vændisfólk er of óttaslegið um að verða sjálft fyrir barðinu á lögunum ef það tilkynnir glæp til lögreglunnar. Lög um vændi eiga að vernda fólk frá misneytingu og misnotkun, frekar en að leitast við að banna allt vændi og refsa vændisfólki.
Stefnan styrkir afstöðu Amnesty International enn frekar um að nauðungarvinna, kynlífsþrælkun barna og mansal séu gróf mannréttindabrot sem kalla á samhæfðar aðgerðir og teljast glæpur samkvæmt alþjóðalögum.
Rannsóknir
Víðtækar rannsóknir, þar á meðal fjórar landfræðilega afmarkaðar skýrslur sem birtar eru ásamt stefnu Amnesty International í dag, sýna að vændisfólk verður oft fyrir hræðilegum mannréttindabrotum. Það má að hluta til rekja til glæpavæðingar, sem stefnir vændisfólki í frekari hættu, eykur jaðarsetningu og heftir getu þess til að leita sér verndar gegn ofbeldi og til að nálgast lögfræði- og félagsþjónustu.
Vændisfólk hefur greint okkur frá því hvernig glæpavæðing gerir lögreglu kleift að áreita það og koma í veg fyrir að umkvartanir þeirra og öryggi njóti forgangs segir Tawanda Mutasah.
Í stað þess að leggja áherslu á að vernda vændisfólk gegn ofbeldi og glæpum, einblína löggæslumenn í mörgum löndum á að koma í veg fyrir vændi í gegnum eftirlit, áreitni og áhlaup. Rannsóknir Amnesty International sýna að vændisfólk fær oft enga eða mjög litla vernd gegn misnotkun eða lagalega úrlausn mála sinna, jafnvel í löndum þar sem sala vændis er í sjálfu sér lögleg.
„Við viljum að lög beinist frekar að því að gera líf vændisfólks öruggara og bæti samband þeirra við lögregluna um leið og þau takist á við það verulega vandamál sem misneyting er. Við viljum að stjórnvöld gangi úr skugga um að enginn sé þvingaður til þess að stunda vændi, eða sé ófær um að láta af því ef þeir kjósa svo.“
Tawanda Mutasah
Papúa Nýja-Gínea
Í Papúa Nýju-Gíneu er ólöglegt að skipuleggja og hafa viðurværi sitt af vændi. Samkynhneigð er einnig refsiverð og er karlkyns vændisfólk yfirleitt lögsótt á grundvelli þess.
Rannsókn Amnesty International leiddi í ljós að þessi hegningarlög gerðu lögreglunni kleift að hóta, kúga og setja vændisfólk í gæsluvarðhaldi að geðþótta. Vændisfólk í Papúa Nýju-Gíneu þarf að þola gífurlega útskúfun, mismunun og ofbeldi, þar á meðal nauðganir og morð.
Könnun sem framkvæmd var af rannsakendum úr fræðasamfélaginu árið 2010 leiddi í ljós að á sex mánaða tímabili hafði 50% vændisfólks í höfuðborg Papúa Nýju-Gíneu, Port Moresby, verið nauðgað af viðskiptavinum eða lögreglu. Amnesty International hlýddi á átakanlega vitnisburði frá vændisfólki sem var nauðgað og kynferðislega misnotað af lögreglu, viðskiptavinum og öðrum einstaklingum en var of óttaslegið til að tilkynna þessa glæpi þar sem það sjálft yrði álitið „ólöglegt“.
,,Lögreglan byrjaði að berja vin minn [viðskiptavin] og mig … sex lögreglumenn komu vilja sínum fram við mig, einn af öðrum. Þeir voru vopnaðir byssum svo ég varð að láta undan. Ég hef engan stuðning til þess að leita til dómstóla og kæra þá. Þetta olli mér svo miklum sársauka en svo sleppti ég takinu. Ef ég leita til réttvísinnar er enga hjálp að finna þar sem að vændi er ólöglegt í Papúa Nýju-Gíneu.“
Mona, heimilislaus manneskja í vændi.
Lögreglan í Papúa Nýju-Gíneu hefur notað smokka sem sönnunargögn gegn vændisfólki, sem er oft útskúfað og ásakað um að vera „smitberar“. Þetta virkar letjandi á margt vændisfólk þegar kemur að því að útvega sér upplýsingar og þjónustu varðandi kynheilbrigði þar með talið hvað varðar HIV/alnæmi.
,,Þegar lögreglan nær okkur eða hefur okkur í haldi, ef hún finnur smokka á okkur þá er okkur lúskrað og sagt að við séum að bjóða kynlíf eða að við séum að breiða út sjúkdóma eins og HIV. Lögreglan biður um peninga, hún hótar okkur eða segir okkur að láta af hendi ákveðna upphæð. Við látum þá af hendi þar sem við erum hrædd um að ef við gerum það ekki þá muni hún ganga í skrokk á okkur.“
Mary, kona í vændi.
Buenos Aires, Argentína
Formlega séð eru sala eða kaup á vændi ekki ólögleg í Buenos Aires en í reynd er vændisfólk gert saknæmt í lögum sem refsa tengdu athæfi og ekki gerður greinarmunur á milli vændis með samþykki og mansals. Rannsókn Amnesty International leiddi í ljós að það þyrfti mikið til að vændisfólk í Buenos Aires kærði ofbeldi til lögreglunnar.
,,Hann [viðskiptavinur] borgaði mér og ég var við það að fara út úr bílnum þegar hann greipum hálsinn á mér og skar mig með hníf. Ég gaf honum alla þá peninga sem ég var með á mér auk farsímans míns og hann sleppti mér.“
Laura, sem stundar götuvændi.
Hún segist ekki hafa tilkynnt ofbeldið eða þjófnaðinn til lögreglunnar þar sem henni fyndist það vera tímasóun: ,,[Hún] munu ekki hlusta á mig vegna þess að ég starfa á götunni.“ Vændisfólk er oft stöðvað á götum úti vegna geðþóttaákvarðana lögreglu og sumir sæta síendurteknum sektum og skilorðum.
Það er ólögmætt að lögregla og saksóknari í Buenos Aires láti útlit, klæðnað eða hegðun einstaklinga hafa áhrif á hvernig þeir framfylgja lögum í tengslum við vændi á almannafæri. Hins vegar á þessar persónugreiningar sér oft stað þar sem beint er spjótum sérstaklega að trans fólki í vændi í aðgerðum lögreglu.
Vændisfólk sem starfar í eigin húsnæði er þá oft látið sæta ofsafengnum og tímafrekum rannsóknum og áhlaupum af hálfu lögreglunnar í Buenos Aires, auk kúgana og múta. Vændisfólk í Buenos Aires greindi einnig frá vandamálum varðandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu, þar á meðal gífurlegri útskúfun og mismunun.
,,Við höfðum engan raunverulegan aðgang að heilbriðisþjónustu þar sem að í hvert skiptisem við fórum á sjúkrahús var hlegið að okkur eða við vorum þau síðustu sem komumst að hjá læknunum.“
Viðmælandi, sem verið hafði í vændi.
Amnesty International komst að því að þetta leiddi til þess að sumt vændisfólk forðaðist að sækja sér þjónustu.
Noregur
Í Noregi er ólöglegt að kaupa kynlíf en ekki selja. Annað sem tengist vændi er refsivert eins og að „stuðla að vændi“ og leigja húsakynni undir vændi. Þrátt fyrir að ofbeldi og nauðganir hálfu viðskiptavina og skipulagðra glæpagengja sé algeng þarf mikið til að vændisfólk kæri ofbeldi til lögreglu.
,,Ég fór í hús manns. Hann kýldi mig tvisvar í kjálkann. Ég sagði lögreglunni ekki frá. Ég vil ekki að það komi fram í skránum mínum.“
Aðili, sem stundar vændi.
Amnesty International fékk vitneskju um að sumt vændisfólk, sem tilkynnt hefur ofbeldi til lögreglunnar í Noregi, hafi verið borið út af heimili sínu eða rekið úr landi í kjölfarið. Samkvæmt norskum lögum, á vændisfólk á hættu að vera borið út nauðugt þar sem húsráðandi getur átt yfir höfði sér kæru fyrir að leigja húsnæði til þess ef það er svo nýtt til að selja vændi. Ef húsráðendur bera fólk ekki út, þá höfðar lögreglan mál á hendur þeim. „Lögreglan ýtir undir að húsráðendur taki lögin í sínar eigin hendur og framfylgi þeim sjálfir,“ útskýrði fulltrúi norskra samtaka sem berjast fyrir réttindum vændisfólks. Fólk sem stundar vændi getur ekki ákveðið að starfa saman til að auka öryggi sitt eða leigt sér þjónustu, eins og öryggisgæslu frá þriðja aðila, þar sem slíkt myndi falla undir það að „stuðla að vændi“.
Ef viðskiptavinur er slæmur þá þarft þú sjálf/ur að takast á við það allt til enda. Þú hringir aðeins á lögregluna ef þú heldur að þú munir deyja. Ef þú hringir á lögregluna, þá missir þú allt.
Viðmælandi sem stundar vændi í Noregi
Hong Kong
Í Hong Kong er vændi ekki ólöglegt ef um er að ræða eina manneskju sem að starfar í eigin íbúð. Að starfa eitt setur vændisfólk í viðkvæma stöðu og í aukna hættu á að verða fyrir ráni, líkamsárás eða nauðgun.
,,Ég hef aldrei kært nokkurn glæp eins og nauðgun þar sem ég er hrædd um að verða ákærð fyrir að selja vændi.“
Queen, sem stundar vændi.
Vændisfólk í Hong Kong nýtur ekki aðeins takmarkaðrar verndar lögreglu heldur er það stundum sérstakt skotmark hennar. Rannsókn Amnesty International sýnir að lögreglufulltrúar misbeita oft valdi sínu til þess að koma sök á og refsa vændisfólki í gegnum ginningar, kúganir og þvinganir. Leynilögreglufulltrúum er veitt leyfi í starfi sínu til að þiggja ákveðna kynlífsþjónustu frá vændisfólki til þess að afla sönnunargagna. Amnesty International skráði einnig tilvik þar sem lögreglan, eða einstaklingar sem sögðust vera í lögreglunni, sagði vændisfólki að það gæti komist hjá viðurlögum með því að gefa þeim peninga eða „frítt“ kynlíf.
Trans fólk í vændi verður oft fyrir barðinu á hrottafengnum aðgerðum lögreglunnar, þar á meðal ágengri og niðurlægjandi líkamsleit sem lögreglumenn framkvæma á trans konum. „Það er mikið af káfi og háði,“ segir lögfræðingur í málsvari fyrir trans fólk í vændi í Hong Kong. Í kjölfar handtöku geta trans konur í vændi verið sendar í gæsluvarðhald ætlað körlum og á sérstakar deildir fyrir fanga með geðraskanir.
Engin réttlæting á misnotkun
„Á alltof mörgum stöðum í heiminum nýtur vændisfólk ekki lagaverndar og þjáist vegna hræðilegra mannréttindabrota. Þessar aðstæður eru aldrei réttlætanlegar. Stjórnvöld verða að vinna að vernd mannréttinda allra, vændisfólks þar með talið. Afglæpavæðing er aðeins eitt af þeim nauðsynlegu skrefum sem stjórnvöld geta tekið til að tryggja vernd gegn skaða,misneytingu og þvingunum,“ segir Tawanda Mutasah.
Helstu spurningar og svör varðandi stefnuna má finna hér
Tengt efni
Allt starf Amnesty International er fjármagnað og drifið áfram af einstaklingum eins og þér. Hvert framlag — hver aðgerð vegur þungt.
Styrktu & skrifaðu undir áköll með símanum
Einfalt og áhrifaríkt aðgerðanet
Vertu með í netákallinu, þar sem meðlimir fá tilkynningar í tölvupósti um alvarleg mannréttindarbrot sem krefjast tafarlausra viðbragða.
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu