Í geðþóttavarðhaldi fyrir störf sín
Ayachi Hammami er túniskur mannréttindalögmaður, eiginmaður, faðir og afi sem hefur um áratugaskeið varið þolendur ranglætis.
Hann hefur lengi barist fyrir mannréttindum og sjálfstæði dómskerfisins.Vinir hans lýsa honum sem „ungri sál“ sem hefur yndi af stjörnufræði, klassískri tónlist og löngum göngutúrum með hundinum sínum, Arya.
Frá því að Kaïs Saied forseti sölsaði undir sig aukin völd árið 2021 hefur Ayachi opinberlega gagnrýnt vaxandi kúgun og sífellt harðari valdboðsstefnu í Túnis. Hann hefur jafnframt verið verjandi lögfræðinga, dómara, blaðamanna og stjórnarandstæðinga sem hafa sætt ofsóknum fyrir friðsamlegt andóf sitt.
Hann var verjandi í hinu alkunna „samsærismáli“ sem var umfangsmikið sakamál þar sem stjórnarandstæðingar voru sakaðir um að hafa lagt á ráðin um að brjóta gegn öryggi ríkisins. Á endanum var hann sjálfur ákærður í sama máli fyrir brot tengd hryðjuverkum.
Í apríl 2025 var Ayachi dæmdur í átta ára fangelsi að loknum sýndarréttarhöldum sem stóðu aðeins yfir í örfáar mínútur. Áfrýjunardómstóll stytti dóminn í fimm ár í nóvember 2025. Hann var fangelsaður nokkrum dögum síðar og hóf 45 daga hungurverkfall til að mótmæla geðþóttavarðhaldi sínu. Fangelsun Ayachis er dæmi um misbeitingu yfirvalda í Túnis þar sem réttarkerfið er í auknum mæli notað til að refsa gagnrýnendum, ógna lögfræðingum og þagga niður í þeim sem gagnrýna misbeitingu valds. Ayachi heldur þó áfram að veita öðrum innblástur með hugrekki sínu og heilindum þrátt fyrir fangavistina.
