Fangelsuð fyrir að afhjúpa spillingu
Ruth López er lögfræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum. Hún er þekkt fyrir ríka réttlætiskennd og sterka sannfæringu um mikilvægi þess að draga gerendur til ábyrgðar.
Þegar Ruth er ekki að kenna eða leiðbeina ungum lögfræðingum og aðgerðasinnum hefur hún unun af lestri og ræktun orkídea í garðinum sínum.
Um árabil benti Ruth á spillingu og mannréttindabrot í El Salvador. Hún helgaði líf sitt baráttunni fyrir réttlæti og verndun réttarríkisins þrátt fyrir hættuna sem því fylgdi.
Frá árinu 2022 hafa stjórnvöld lýst yfir neyðarástandi í El Salvador sem veitir yfirvöldum víðtækar heimildir til að þagga niður í gagnrýnendum, herja á aðgerðasinna og skerða grundvallarréttindi. Í dag á fólk á hættu að vera svipt frelsi sínu fyrir það eitt að tjá sig friðsamlega eða verja mannréttindi.
Í maí 2025 var Ruth handtekin á heimili sínu og færð í varðhald. Fjölskylda hennar vissi ekki hvar hún var niðurkomin í 40 klukkustundir. Ári síðar er Ruth enn í gæsluvarðhaldi. Réttur hennar til réttlátrar málsmeðferðar er ekki virtur og hún fær ekki að vera í reglulegu sambandi við fjölskyldu sína eða lögmann.
Ruth López er samviskufangi sem er í haldi fyrir það eitt að nýta mannréttindi sín með friðsamlegum hætti.
Ruth López er samviskufangi.
