Ekki vitað um afdrif gagnrýnanda stjórnvalda

Humphrey Polepole er fyrrverandi stjórnarerindreki og gagnrýnandi stjórnvalda sem numinn var á brott af heimili sínu í Dar es Salaam í Tansaníu þann 6. október 2025 af óeinkennisklæddum þjóðaröryggissveitarmönnum.

Fjölskylda hans kom að útidyrahurðinni brotinni og var umtalsvert magn af blóði á vettvangi. Fjölskylda og vinir Humphreys hafa ekki getað náð sambandi við hann síðan.  Móðir hans gengur oft grátandi um gólf heima hjá sér og kallar: „Humphrey, hvar ertu? Hvar ertu?“

Humphrey var að öllum líkindum skotmark vegna þess að hann hefur verið berorður í harðri gagnrýni sinni á stjórnvöld. Hann hefur gagnrýnt Samia Suluhu Hassan forseta og stjórnarflokkinn fyrir að þrengja að borgaralegu rými, brjóta mannréttindi og ráðast gegn fulltrúum stjórnarandstöðunnar.

Humphrey er virkur og vel liðinn þátttakandi í nærsamfélagi sínu. Í frítíma sínum styður hann fólk í viðkvæmri stöðu, heimsækir reglulega munaðarleysingjaheimili og skipuleggur námskeið fyrir ungt fólk um þátttöku í stjórnmálum. Fjölskylda hans saknar hans sárt, ekki síst öldruð móðir hans, sem hann annast, og ástkær hundur hans, Fighter. Hann ætti að fá að njóta þess að vera með fjölskyldu sinni sem saknar hans sárt.

Þvingað mannshvarf hans er glæpur samkvæmt alþjóðalögum. Það á við þegar réttmætur grunur er um að einstaklingur hafi verið handtekinn en yfirvöld neita að gefa upplýsingar. Mál hans er dæmi um valdboðsstefnu yfirvalda í Tansaníu þar sem yfirvöld refsa þeim sem gagnrýna stjórnvöld og þagga niður í þeim.

Krefstu þess að stjórnvöld í Tansaníu veiti tafarlaust upplýsingar um afdrif Humphreys og hvar hann er niðurkominn.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Túnis

Í geðþóttavarðhaldi fyrir störf sín

Ayachi Hammami er túniskur mannréttindalögmaður sem var ranglega fangelsaður í kjölfar sýndarréttarhalda. Hann var ákærður fyrir brot sem tengjast hryðjuverkum í tengslum við störf sín sem verjandi dómara, lögfræðinga, fjölmiðlafólks, aðgerðasinna og stjórnarandstæðinga.

Skrifa undir
Pakistan

Hjón fangelsuð fyrir störf sín sem mannréttindalögmenn

Imaan Mazari-Hazir og Hadi Ali Chattha eru hjón og mannréttindalögmenn. Þrátt fyrir hótanir og áreitni af hálfu yfirvalda hafa þau helgað starfsævi sína því að veita lögfræðiaðstoð fyrir þolendur kúgunar ríkisins. Í janúar 2026 voru þau dæmd í langa fangelsisvist fyrir færslur á samfélagsmiðlum.

Skrifa undir
Hong Kong

 Í fangelsi fyrir að standa vörð um lýðræðið

Owen Chow tók þátt í sinni fyrstu kröfugöngu fyrir lýðræðið aðeins 15 ára gamall. Hann varð síðar hluti af hópi aðgerðasinna og stjórnmálafólks sem var sótt til saka á grundvelli afar íþyngjandi þjóðaröryggislaga Hong Kong vegna þátttöku sinnar í stjórnmálum.

Skrifa undir
El Salvador

Fangelsuð fyrir að afhjúpa spillingu

Ruth López er lögfræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur um árabil beint sjónum að spillingu og óréttlæti í El Salvador. Í maí 2025 var Ruth handtekin á heimili sínu og færð í varðhald. Ári síðar er hún enn í gæsluvarðhaldi án reglulegs aðgangs að lögmanni sínum eða fjölskyldu.

Skrifa undir
Egyptaland

Í haldi fyrir að styðja fjölskyldur fanga

Marwa Arafa er egypsk baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur setið í geðþóttavarðhaldi í rúm sex ár vegna friðsamlegs starfs síns í þágu barna í haldi og fjölskyldna þeirra. Marwa hefur nú verið ákærð að tilhæfulausu fyrir brot tengd hryðjuverkum sem geta varðað lífstíðarfangelsi.

Skrifa undir
Rússland

Refsað fyrir að vernda fólkið sitt

Daria Egereva er rússnesk baráttukona fyrir réttindum frumbyggja. Hún á yfir höfði sér 20 ára fangelsi fyrir friðsamlegt mannréttindastarf. Þrátt fyrir hótanir og varðhaldsvist hefur Daria sýnt hugrekki og staðið ótrauð vörð um réttindi samfélags síns.

Skrifa undir
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.