Hjón fangelsuð fyrir störf sín sem mannréttindalögmenn
Imaan Mazari-Hazir og Hadi Ali Chattha eru mannréttindalögmenn. Þau eru hjón á fertugsaldri sem kynntust þegar þau gættu hagsmuna sama skjólstæðings fyrir dómi.
Þau hafa unun af því að fara saman út að borða og hitta vini sína þegar þau hafa tíma eftir langan vinnudag. Hjónin hafa helgað starfsævi sína því að veita lögfræðiaðstoð fyrir þolendur kúgunar ríkisins. Starf sem er ekki hættulaust í Pakistan. Þrátt fyrir hótanir og áreitni af hálfu yfirvalda héldu þau ótrauð áfram.
Imaan sagði: „Það hvarflaði aldrei að mér að hætta baráttustarfi mínu vegna þessara hótana. Að líta sífellt um öxl verður til þess að maður missir sjónar á málstaðnum. Þannig fá andstæðingarnir sínu framgengt.“ Í janúar 2026 voru Imaan og Hadi dæmd í langa fangelsisvist fyrir að birta færslur á samfélagsmiðlum til stuðnings aðgerðasinnum sem tilheyra þjóðernishópunum Balútsum og Pastúnum. Þau gagnrýndu jafnframt pakistanska herinn.
Sakfelling þeirra endurspeglar hvernig pakistönsk yfirvöld misbeita réttarkerfinu til að þrengja að tjáningarfrelsinu, þagga niður í gagnrýnendum og refsa lögfræðingum fyrir störf sín. Allt þetta gera þau til að styrkja valdastöðu sína.
Imaan og Hadi stija nú í haldi, aðskilin hvort frá öðru, í stað þess að geta sinnt starfi sínu og notið þess að gera það sem þau hafa unun af.
