TikTok-áhrifavaldur og baráttukona fangelsuð fyrir gagnrýni

Baráttukonan Rokiatou Doumbia rekur sitt eigið fyrirtæki og er áhrifavaldur í Malí. Hún er þekkt fyrir hugrekki sitt og að segja skoðanir sínar umbúðalaust.

Á TikTok skapaði hún vettvang þar sem 175.000 fylgjendur hennar gátu rætt opinskátt um erfiðleika daglegs lífs og hækkandi matarverð. Hún fékk í kjölfarið viðurnefnið „Rose Poivron“ („Paprikurósin“).

Rokiatou hefur um árabil stutt konur og fjölskyldur í nærsamfélagi sínu. Hún stofnaði félag sem aðstoðar konur við að koma eigin rekstri á fót og hefur skipulagt dreifingu matvæla til fólks í neyð. Vinir hennar og fylgjendur lýsa henni sem umhyggjusamri og örlátri konu sem láti velferð samfélagsins sig miklu varða.

Hún var handtekin í mars 2023 eftir að hafa gagnrýnt hækkandi framfærslukostnað og heryfirvöld í beinu streymi á TikTok. Hún var handtekin og ákærð fyrir að „hvetja til uppreisnar“, „raska allsherjarreglu“, „kasta rýrð á ríkið“ og fyrir „glæpsamlegt samsæri“. Tveir ákæruliðanna voru síðar felldir niður. Í ágúst 2026 var Rokiatou engu að síður dæmd í tíu ára fangelsi fyrir „að rýra álit ríkisins“ og „glæpsamlegt samsæri“. Hún þarf að afplána sjö ár en þrjú ár dómsins eru skilorðsbundin.

Varðhald Rokiatou endurspeglar víðtæka aðför að gagnrýnendum í Malí, þar sem yfirvöld beita handtökum og ákærum í auknum mæli til að þagga niður í gagnrýnisröddum.

Mál hennar er dæmi um það hvernig konur sem tjá sig opinberlega geta átt á hættu að verða fyrir áreitni á netinu, kúgun, mismunun og fordæmingu sem miðar að því að hrekja þær úr opinberri umræðu. Það varpar jafnframt ljósi á að stafrænir miðlar í Malí eru í auknum mæli orðnir vettvangur eftirlits og stjórnunar.

Krefstu þess að yfirvöld í Malí leysi Rokiatou Doumbia skilyrðislaust úr haldi án tafar.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Túnis

Í geðþóttavarðhaldi fyrir störf sín

Ayachi Hammami er túniskur mannréttindalögmaður sem var ranglega fangelsaður í kjölfar sýndarréttarhalda. Hann var ákærður fyrir brot sem tengjast hryðjuverkum í tengslum við störf sín sem verjandi dómara, lögfræðinga, fjölmiðlafólks, aðgerðasinna og stjórnarandstæðinga.

Skrifa undir
Tansanía

Ekki vitað um afdrif gagnrýnanda stjórnvalda

Fyrrverandi stjórnarerindrekinn Humphrey Polepole var numinn á brott af heimili sínu í Dar es Salaam í Tansaníu þann 6. október 2025. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Humphrey var að öllum líkindum skotmark yfirvalda vegna gagnrýni sinnar á forsetann og stjórnarflokkinn.

Skrifa undir
Pakistan

Hjón fangelsuð fyrir störf sín sem mannréttindalögmenn

Imaan Mazari-Hazir og Hadi Ali Chattha eru hjón og mannréttindalögmenn. Þrátt fyrir hótanir og áreitni af hálfu yfirvalda hafa þau helgað starfsævi sína því að veita lögfræðiaðstoð fyrir þolendur kúgunar ríkisins. Í janúar 2026 voru þau dæmd í langa fangelsisvist fyrir færslur á samfélagsmiðlum.

Skrifa undir
Hong Kong

 Í fangelsi fyrir að standa vörð um lýðræðið

Owen Chow tók þátt í sinni fyrstu kröfugöngu fyrir lýðræðið aðeins 15 ára gamall. Hann varð síðar hluti af hópi aðgerðasinna og stjórnmálafólks sem var sótt til saka á grundvelli afar íþyngjandi þjóðaröryggislaga Hong Kong vegna þátttöku sinnar í stjórnmálum.

Skrifa undir
El Salvador

Fangelsuð fyrir að afhjúpa spillingu

Ruth López er lögfræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur um árabil beint sjónum að spillingu og óréttlæti í El Salvador. Í maí 2025 var Ruth handtekin á heimili sínu og færð í varðhald. Ári síðar er hún enn í gæsluvarðhaldi án reglulegs aðgangs að lögmanni sínum eða fjölskyldu.

Skrifa undir
Egyptaland

Í haldi fyrir að styðja fjölskyldur fanga

Marwa Arafa er egypsk baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur setið í geðþóttavarðhaldi í rúm sex ár vegna friðsamlegs starfs síns í þágu barna í haldi og fjölskyldna þeirra. Marwa hefur nú verið ákærð að tilhæfulausu fyrir brot tengd hryðjuverkum sem geta varðað lífstíðarfangelsi.

Skrifa undir
Rússland

Refsað fyrir að vernda fólkið sitt

Daria Egereva er rússnesk baráttukona fyrir réttindum frumbyggja. Hún á yfir höfði sér 20 ára fangelsi fyrir friðsamlegt mannréttindastarf. Þrátt fyrir hótanir og varðhaldsvist hefur Daria sýnt hugrekki og staðið ótrauð vörð um réttindi samfélags síns.

Skrifa undir
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.