Í fangelsi fyrir að standa vörð um lýðræðið

Owen Chow er lýst af vinum sínum sem ævintýragjörnum og heimspekilega þenkjandi. Hann stundaði nám í hjúkrunarfræði, iðkar tíbeskan búddisma og hefur alltaf langað til að eignast hund.

Owen tók þátt í sinni fyrstu kröfugöngu fyrir lýðræðið aðeins 15 ára gamall. Hann lét til sín taka opinberlega í þeirri von að geta stutt fólk sem stendur höllum fæti og stuðlað að réttlátara samfélagi, en í Hong Kong er orðið hættulegt að láta í sér heyra.

Árið 2020 innleiddu stjórnvöld í Peking afar íþyngjandi þjóðaröryggislög í Hong Kong. Í kjölfarið hefur stjórnarandstaðan verið brotin á bak aftur, þaggað niður í óháðum fjölmiðlum og borgaraleg samtök knúin til að hætta starfsemi.

Þrátt fyrir hættuna bauð Owen sig óhræddur fram í óopinberum „forkosningum“ aðeins 23 ára gamall. Markmið þeirra var að velja frambjóðendur fyrir komandi kosningar. Yfirvöld brugðust við með því að saka Owen og 46 aðra um samsæri til að grafa undan ríkisvaldinu.

Árið 2021 var Owen handtekinn og árið 2024 var hann dæmdur í rúmlega tólf ára fangelsi. Honum verður líklega ekki sleppt úr haldi fyrr en árið 2032 og honum hefur verið haldið í einangrunarvist í að minnsta kosti þrjú ár.

Mál Owens er aðeins eitt af mörgum í Hong Kong. Borgin var eitt sinn þekkt fyrir frjáls og opin skoðanaskipti en nú er íbúum haldið í heljargreipum óttans. Fólk sem áður tók tjáningarfrelsinu sem gefnu telur sig ekki lengur frjálst til að nýta rétt sinn til tjáningar.

Krefstu þess að stjórnvöld í Hong Kong leysi Owen skilyrðislaust úr haldi án tafar.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Túnis

Í geðþóttavarðhaldi fyrir störf sín

Ayachi Hammami er túniskur mannréttindalögmaður sem var ranglega fangelsaður í kjölfar sýndarréttarhalda. Hann var ákærður fyrir brot sem tengjast hryðjuverkum í tengslum við störf sín sem verjandi dómara, lögfræðinga, fjölmiðlafólks, aðgerðasinna og stjórnarandstæðinga.

Skrifa undir
Tansanía

Ekki vitað um afdrif gagnrýnanda stjórnvalda

Fyrrverandi stjórnarerindrekinn Humphrey Polepole var numinn á brott af heimili sínu í Dar es Salaam í Tansaníu þann 6. október 2025. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Humphrey var að öllum líkindum skotmark yfirvalda vegna gagnrýni sinnar á forsetann og stjórnarflokkinn.

Skrifa undir
Pakistan

Hjón fangelsuð fyrir störf sín sem mannréttindalögmenn

Imaan Mazari-Hazir og Hadi Ali Chattha eru hjón og mannréttindalögmenn. Þrátt fyrir hótanir og áreitni af hálfu yfirvalda hafa þau helgað starfsævi sína því að veita lögfræðiaðstoð fyrir þolendur kúgunar ríkisins. Í janúar 2026 voru þau dæmd í langa fangelsisvist fyrir færslur á samfélagsmiðlum.

Skrifa undir
El Salvador

Fangelsuð fyrir að afhjúpa spillingu

Ruth López er lögfræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur um árabil beint sjónum að spillingu og óréttlæti í El Salvador. Í maí 2025 var Ruth handtekin á heimili sínu og færð í varðhald. Ári síðar er hún enn í gæsluvarðhaldi án reglulegs aðgangs að lögmanni sínum eða fjölskyldu.

Skrifa undir
Egyptaland

Í haldi fyrir að styðja fjölskyldur fanga

Marwa Arafa er egypsk baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur setið í geðþóttavarðhaldi í rúm sex ár vegna friðsamlegs starfs síns í þágu barna í haldi og fjölskyldna þeirra. Marwa hefur nú verið ákærð að tilhæfulausu fyrir brot tengd hryðjuverkum sem geta varðað lífstíðarfangelsi.

Skrifa undir
Rússland

Refsað fyrir að vernda fólkið sitt

Daria Egereva er rússnesk baráttukona fyrir réttindum frumbyggja. Hún á yfir höfði sér 20 ára fangelsi fyrir friðsamlegt mannréttindastarf. Þrátt fyrir hótanir og varðhaldsvist hefur Daria sýnt hugrekki og staðið ótrauð vörð um réttindi samfélags síns.

Skrifa undir
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.