Í haldi fyrir að styðja fjölskyldur fanga

Marwa Arafa er 33 ára egypsk baráttukona fyrir mannréttindum, þýðandi og móðir. Hún hefur sætt geðþóttavarðhaldi í rúmlega sex ár, eingöngu fyrir friðsamlegt aðgerðastarf.

Marwa helgaði líf sitt stuðningi við fjölskyldur pólitískra fanga og börn sem voru í haldi. Hún var handtekin að tveggja ára dóttur sinni viðstaddri. Dóttir hennar er nú átta ára og langvarandi aðskilnaður frá móður hennar hefur reynst henni afar þungbær.

Marwa sætir refsingu fyrir að sýna fólki í haldi samstöðu, vekja athygli á brotum gegn börnum og aðstoða fjölskyldur við að standa straum af kostnaði vegna fangelsisheimsókna. Í apríl 2020 réðust egypskar öryggissveitir inn á heimili vinar Mörwu, þar sem hún dvaldi. Hún var handtekin og sætti þvinguðu mannshvarfi í tvær vikur þar sem ekkert var vitað hvar hún væri niðurkomin. Síðar var hún ákærð að tilhæfulausu fyrir brot tengd hryðjuverkum. Hún sætir nú ósanngjörnum réttarhöldum á grundvelli ákæra sem geta varðað lífstíðarfangelsi.

Heilsu Mörwu hefur hrakað verulega í fangelsinu þar sem henni er neitað um tilhlýðilega læknisaðstoð. Mál hennar er enn eitt dæmið um misbeitingu hryðjuverkalöggjafar í Egyptalandi gegn stjórnarandstæðingum, mannréttindafrömuðum og öllum þeim sem taldir eru gagnrýna valdhafa. Marwa heldur í vonina og sækir styrk í ástina á dóttur sinni og trúna á réttlætið.

Krefstu þess að stjórnvöld í Egyptalandi leysi Mörwu Arafa skilyrðislaust úr haldi án tafar og felli niður allar ákærur á hendur henni þar sem hún er í haldi fyrir það eitt að nýta mannréttindi sín.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Túnis

Í geðþóttavarðhaldi fyrir störf sín

Ayachi Hammami er túniskur mannréttindalögmaður sem var ranglega fangelsaður í kjölfar sýndarréttarhalda. Hann var ákærður fyrir brot sem tengjast hryðjuverkum í tengslum við störf sín sem verjandi dómara, lögfræðinga, fjölmiðlafólks, aðgerðasinna og stjórnarandstæðinga.

Skrifa undir
Tansanía

Ekki vitað um afdrif gagnrýnanda stjórnvalda

Fyrrverandi stjórnarerindrekinn Humphrey Polepole var numinn á brott af heimili sínu í Dar es Salaam í Tansaníu þann 6. október 2025. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Humphrey var að öllum líkindum skotmark yfirvalda vegna gagnrýni sinnar á forsetann og stjórnarflokkinn.

Skrifa undir
Pakistan

Hjón fangelsuð fyrir störf sín sem mannréttindalögmenn

Imaan Mazari-Hazir og Hadi Ali Chattha eru hjón og mannréttindalögmenn. Þrátt fyrir hótanir og áreitni af hálfu yfirvalda hafa þau helgað starfsævi sína því að veita lögfræðiaðstoð fyrir þolendur kúgunar ríkisins. Í janúar 2026 voru þau dæmd í langa fangelsisvist fyrir færslur á samfélagsmiðlum.

Skrifa undir
Hong Kong

 Í fangelsi fyrir að standa vörð um lýðræðið

Owen Chow tók þátt í sinni fyrstu kröfugöngu fyrir lýðræðið aðeins 15 ára gamall. Hann varð síðar hluti af hópi aðgerðasinna og stjórnmálafólks sem var sótt til saka á grundvelli afar íþyngjandi þjóðaröryggislaga Hong Kong vegna þátttöku sinnar í stjórnmálum.

Skrifa undir
El Salvador

Fangelsuð fyrir að afhjúpa spillingu

Ruth López er lögfræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur um árabil beint sjónum að spillingu og óréttlæti í El Salvador. Í maí 2025 var Ruth handtekin á heimili sínu og færð í varðhald. Ári síðar er hún enn í gæsluvarðhaldi án reglulegs aðgangs að lögmanni sínum eða fjölskyldu.

Skrifa undir
Rússland

Refsað fyrir að vernda fólkið sitt

Daria Egereva er rússnesk baráttukona fyrir réttindum frumbyggja. Hún á yfir höfði sér 20 ára fangelsi fyrir friðsamlegt mannréttindastarf. Þrátt fyrir hótanir og varðhaldsvist hefur Daria sýnt hugrekki og staðið ótrauð vörð um réttindi samfélags síns.

Skrifa undir
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.