Refsað fyrir að vernda fólkið sitt

Daria Egereva hefur varið ævi sinni í baráttu til verndar réttindum fólks, menningararfleifð og umhverfi.

Hún fæddist í Síberíu og tilheyrir frumbyggjasamfélaginu Selkup, sem telur aðeins 3.500 einstaklinga. Hún menntaði sig til kennara en varð síðan virt baráttukona fyrir réttindum frumbyggja og loftslagsréttlæti.

Vinir hennar lýsa henni sem hlýrri og félagslyndri manneskju með ríka samkennd.  Hún hefur yndi af lestri og löngum göngutúrum í náttúrunni. Hún talar oft um uppvaxtarár sín í barrskógabeltinu, víðáttumiklum grænum skógum þar sem hún tíndi ber með fjölskyldu sinni og tengdist náttúrunni sterkum böndum.

Daria á yfir höfði sér 20 ára fangelsi fyrir friðsamlegt mannréttindastarf sitt. Í desember 2025 handtóku rússnesk yfirvöld Dariu. Hún var sökuð um aðild að baráttuhópi frumbyggja sem skilgreindur er sem „hryðjuverkasamtök“ af yfirvöldum. Starf hennar beindist þó að verndun landsvæða, tungumála og menningar frumbyggja. Mál Dariu endurspeglar víðtækt mynstur þar sem aðgerðasinnar eru ásakaðir um „öfgahyggju“ og „hryðjuverkastarfsemi“ af yfirvöldum. Með þessu móti geta valdhafar þaggað niður í óháðum röddum og fælt aðra frá því að tjá sig. Daria gaf gildi sín þó ekki eftir. Þrátt fyrir þrýsting og hótanir hélt hún áfram að sýna hugrekki og einurð til að verja samfélag sitt og réttindi þess.

Krefstu þess að rússnesk stjórnvöld leysi Dariu Egerevu skilyrðislaust úr haldi án tafar og bindi enda á kúgun baráttufólks frumbyggja sem berst fyrir réttindum sínum víðs vegar um Rússland.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Túnis

Í geðþóttavarðhaldi fyrir störf sín

Ayachi Hammami er túniskur mannréttindalögmaður sem var ranglega fangelsaður í kjölfar sýndarréttarhalda. Hann var ákærður fyrir brot sem tengjast hryðjuverkum í tengslum við störf sín sem verjandi dómara, lögfræðinga, fjölmiðlafólks, aðgerðasinna og stjórnarandstæðinga.

Skrifa undir
Tansanía

Ekki vitað um afdrif gagnrýnanda stjórnvalda

Fyrrverandi stjórnarerindrekinn Humphrey Polepole var numinn á brott af heimili sínu í Dar es Salaam í Tansaníu þann 6. október 2025. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Humphrey var að öllum líkindum skotmark yfirvalda vegna gagnrýni sinnar á forsetann og stjórnarflokkinn.

Skrifa undir
Pakistan

Hjón fangelsuð fyrir störf sín sem mannréttindalögmenn

Imaan Mazari-Hazir og Hadi Ali Chattha eru hjón og mannréttindalögmenn. Þrátt fyrir hótanir og áreitni af hálfu yfirvalda hafa þau helgað starfsævi sína því að veita lögfræðiaðstoð fyrir þolendur kúgunar ríkisins. Í janúar 2026 voru þau dæmd í langa fangelsisvist fyrir færslur á samfélagsmiðlum.

Skrifa undir
Hong Kong

 Í fangelsi fyrir að standa vörð um lýðræðið

Owen Chow tók þátt í sinni fyrstu kröfugöngu fyrir lýðræðið aðeins 15 ára gamall. Hann varð síðar hluti af hópi aðgerðasinna og stjórnmálafólks sem var sótt til saka á grundvelli afar íþyngjandi þjóðaröryggislaga Hong Kong vegna þátttöku sinnar í stjórnmálum.

Skrifa undir
El Salvador

Fangelsuð fyrir að afhjúpa spillingu

Ruth López er lögfræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur um árabil beint sjónum að spillingu og óréttlæti í El Salvador. Í maí 2025 var Ruth handtekin á heimili sínu og færð í varðhald. Ári síðar er hún enn í gæsluvarðhaldi án reglulegs aðgangs að lögmanni sínum eða fjölskyldu.

Skrifa undir
Egyptaland

Í haldi fyrir að styðja fjölskyldur fanga

Marwa Arafa er egypsk baráttukona fyrir mannréttindum sem hefur setið í geðþóttavarðhaldi í rúm sex ár vegna friðsamlegs starfs síns í þágu barna í haldi og fjölskyldna þeirra. Marwa hefur nú verið ákærð að tilhæfulausu fyrir brot tengd hryðjuverkum sem geta varðað lífstíðarfangelsi.

Skrifa undir
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.