Þann 10. maí 2019 skipulögðu nemendur í einum virtasta tækniháskóla Tyrklands Middle East Technical University (METU) gleðigöngu og hátíðarhöld til að fagna ástinni og fjölbreytileikanum. En friðsömum og löglegum hátíðarhöldunum var mætt með ofbeldi og hörku lögreglu sem beitti piparúða, plastskotum og táragasi á mannfjöldann. Að minnsta kosti 22 einstaklingar voru handteknir með ólögmætum hætti á háskólasvæðinu og nú eiga 18 þeirra, auk eins starfsmanns skólans, yfir höfði sér tilhæfulausar ákærur fyrir þátttöku í gleðigöngunni. Réttarhöldin yfir þeim hefjast 12. mars.
Myndbandsupptökur sýna að nemendur og starfsfólk skólans höfðu safnast saman friðsamlega en þeim svo sagt að þau mættu ekki flagga regnbogafánum eða setjast á grasfleti svæðisins. Einnig var þeim bannað að flytja ávörp.
Ríkjum ber skylda til að leyfa fólki að standa fyrir friðsömum samkomum. Í þessu tilfelli var brotið á rétti nemenda og starfsólks METU með hörku og ofbeldi með fyrrgreindum afleiðingum.
Netákallsfélagar krefjast þess að ákærur á hendur 18 nemendum og einum starfsmanni METU verði látnar niður falla án tafar og ofbeldisfullar aðgerðir lögreglu verði rannsakaðar og ábyrgðaraðilar látnir svara til saka!
Þetta hugrakka unga fólk þarf á stuðningi þínum að halda. Sýndu þeim stuðning í verki og skrifaðu undir ákallið strax!