Vernda þarf Tamíla sem starfa á teplantekrum á Srí Lanka
Margar kynslóðir af verkafólki Tamíla í suðurhluta Srí Lanka hafa unnið á einkareknum teplantekrum og hafa ítrekað mátt þola óréttlæti í vinnu vegna áratugalangrar efnahagslegrar og félagslegrar útilokunar. Vernda þarf tamílskt verkafólk á teplantekrum gegn þvingaðri vinnu og öðrum brotum á mannréttindum.
Tamílar sæta kerfisbundinni útilokun
Frá því að Tamílar komu til Srí Lanka í byrjun 19. aldar hafa þeir verið sá hópur sem hefur orðið fyrir mestri mismunun í landinu. Tamílar hafa að mestu starfað við ósýnileg störf á teplantekrum. Þrátt fyrir að útflutningur á tei sé næststærsta útflutningstekjulind landsins hafa þeir í næstum tvær aldir mátt þola kerfisbundna og skipulagða útilokun.
Skuldaþrælkun
Á einkareknum teplantekrum í suðurhluta landsins er verkafólk fast í vítahring sem gæti jafngilt skuldaþrælkun. Lág laun neyða fólkið til að búa við hörmulegar aðstæður í húsnæði á vegum vinnuveitandans sem dregur síðan af laununum kostnað fyrir nauðsynjum. Á sama tíma er fylgst með öllum ferðum verkafólksins, kvartanir hunsaðar og þaggað er niður í röddum þess.
Skortur á raunverulegri vernd
Á pappírum er vinnulöggjöf til staðar og réttindi verkafólks eru varin í stjórnarskrá Srí Lanka. Þrátt fyrir það njóta Tamílar ekki slíkrar verndar. Skuldum og misnotkun er kerfisbundið beitt sem stjórntæki og vinnuveitendur fá að halda áfram rekstri refsilaust.
Það er kominn tími til að stöðva þetta óréttlæti!

