Vernda þarf þolendur jarðskjálftanna í Venesúela
Jarðskjálftarnir sem skuku Venesúela þann 24. júní 2026 hafa haft skelfilegar afleiðingar fyrir fjölda fólks. Þúsundir létu lífið, særðust, misstu heimili sín eða fundu fyrir afleiðingum jarðskjálftanna með einum eða öðrum hætti. Opinberar tölur um fjölda látinna, særðra og þeirra sem hafa misst heimili sín fara síhækkandi en segja ekki enn almennilega til um umfang hörmunganna.
Skert fjölmiðla- og tjáningarfrelsi
Í áraraðir hefur verið þrengt að fjölmiðlafrelsi, tjáningarfrelsi og aðgangi að upplýsingum í Venesúela vegna ritskoðunar af hálfu ríkisins. Það hefur meðal annars verið gert með því að leggja fjölda fjölmiðla niður, loka fyrir aðgang að samfélagsmiðlum á borð við X og refsa fjölmiðlafólki og mannréttindafrömuðum.
Nú er mikilvægt að vernda fjölmiðlafólk sem veitir almenningi mikilvægar upplýsingar um stöðu mála sem geta bjargað lífi og verndað fólk í neyð. Tryggja þarf fjölmiðlafrelsi, tjáningarfrelsi og aðgang að upplýsingum sem felur meðal annars í sér að aflétta banni fjölmiðla og netmiðla til samræmis við alþjóðleg lög og staðla.
Neyðaraðstoð þarf að vera í samræmi við mannréttindalög
Stjórnvöld í Venesúela verða að tryggja að neyðaraðstoð og önnur viðbrögð við hamförunum fylgi alþjóðlegum mannréttindalögum og stöðlum um um framkvæmd neyðaraðstoðar. Jafnframt verða þau að byggja á mannúðarreglunum um mannúð, hlutleysi, óhlutdrægni og sjálfstæði. Það felur í sér að forðast hvers kyns mismunun við veitingu mannúðaraðstoðar. Einnig þarf að grípa til sértækra ráðstafana til að vernda fólk í viðkvæmri stöðu, þar á meðal börn og eldra fólk.

