Úígúri í Kína ranglega í haldi í tíu ár

Í tíu ár hefur Ekpar Asat setið ranglega í fangelsi í Kína fyrir að vera Úígúri. Enginn ætti að þurfa að þjást með þessum hætti. Leysa þarf Ekpar úr haldi án tafar. Veittu honum og fjölskyldu hans von með þínum stuðningi.  

Skert tjáningarfrelsi

Ekpar var tæknifrumkvöðull sem stofnaði vinsælan netmiðil og helgaði starf sitt stuðningi við eldra fólk og fötluð börn. Miðillinn sem hann bjó til var vettvangur fyrir fólk þar sem hægt var að deila efni um málefni líðandi stundar og menningu. Í landi þar sem tjáningarfrelsi er mjög takmarkað, sérstaklega fyrir Úígúra, dró miðillinn að sér athygli.

„Hann hefur verið rændur tíu árum. Hann má ekki missa af fleiri dögum“

Rayhan, systir Ekpar.
Ofsóknir gegn Úígúrum

Frá árinu 2017 hafa kínversk yfirvöld með kerfisbundnum hætti brotið gegn múslímum í héraðinu Xianjian. Um helmingur íbúa í héraðinu eru múslímar og langflestir þeirra eru Úígúrar. Áætlað er að rúmlega milljónir einstaklinga hafi verið færðar í fangabúðir. Það er gert undir því yfirskini að berjast gegn hryðjuverkum og trúarofstæki.

Leynileg réttarhöld

Í apríl 2016 hvarf Ekpar stuttu eftir að hann snéri heim frá Bandaríkjunum að loknu skiptinámi. Hann var sakfelldur, í leynilegum réttarhöldum, á grundvelli ákæra um að „hvetja til þjóðernishaturs og mismununar“. Talið er að hann afpláni 15 ára fangelsisdóm en fjölskylda hans hefur hvorki fengið afrit af dómskjölum né staðfestingu á því hvort hann hafi notið aðstoðar lögfræðings.

Takmörkuð samskipti

Í öll þessi ár hefur fjölskylda hans fengið að vera í takmörkuðum samskiptum við Ekpar. Í fyrsta myndasímtali hans við fjölskyldu sína árið 2021 sýndi hann merki um vannæringu, skort á sólarljósi og fullnægjandi heilbrigðisþjónustu. Það gefur til kynna að aðstæður í fangelsinu brjóti gegn alþjóðlegum mannréttindastöðlum. Fjölskylda hans fékk að heimsækja hann í fangelsið árið 2025 sem olli þeim verulegum áhyggjum. Systir hans Rayhan óttast að fangelsunin sé að valda Ekpar verulegum líkamlegum og andlegum skaða.

Hvað getur þú gert?

Skrifaðu undir til að krefjast þess að kínversk yfirvöld leysi Ekpar Asat úr haldi án tafar.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.