Forseti Gambíu, Adama Barrow, sakaði mannréttindafrömuðinn Madi Jobarteh um að vera „ólíkindatól“ sem vildi ofbeldi inn í landið þegar hann var á árlegum fundi sínum með öldungadeild múslima í Banjul í Gambíu í ríkisþinghúsinu á Koriteh fösturofshátíðinni þann 2. maí 2022.
Ásökunin er líklega tilkomin vegna nýlegrar færslu Madi Jobarteh á samfélagsmiðlum þar sem kallað var eftir því að ráðherra ríkisstjórnarinnar yrði vikið frá vegna meintrar óstjórnar á þjóðlendum. Yfirlýsing forsetans setur öryggi Madi Jobarteh í hættu og grefur undan tjáningarfrelsinu í Gambíu.
Gríptu til aðgerða og skrifaðu undir ákall um að öryggi mannréttindafrömuðarins Madi Jobarteh verði tryggt og að hann geti nýtt sér rétt sinn til tjáningar sem er staðfestur í stjórnarskrá Gambíu.
Enn fremur er kallað eftir því að baráttufólk fyrir mannréttindum geti stundað störf sín með friðsömum hætti án hindrana, hótana og gæsluvarðhalds eða fangelsisvistar að geðþótta í samræmi við yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um baráttufólk fyrir mannréttindum.