Síerra Leóne

Ólögmæt manndráp og pyndingar

Í ágúst árið 2022 sköp­uðust óeirðir í nokkrum borgum Síerra Leóne, þar á meðal í höfuð­borg­inni Freetown. Uppþotin orsök­uðust af ýmsum þáttum, þeirra á meðal óánægju með stefnu stjórn­valda og efna­hagskreppu.

Þrátt fyrir ríku­legar nátt­úru­auð­lindir er Síerra Leóne eitt af fátæk­ustu löndum heims. Samkvæmt lífs­kjara­vísi­tölu Sameinuðu þjóð­anna er landið í 181. sæti af 191 landi. Síerra Leóne telst einnig til landa sem minnst hafa fjár­fest í félags­vernd eða aðeins 0,7% af veginni lands­fram­leiðslu, að kostnaði við heil­brigð­is­þjón­ustu undan­skildum.

Ákvörðun stjórn­valda um að hækka bens­ín­verð um 20% var kornið sem fyllti mælinn og hratt af stað öldu mótmæla þann 10. ágúst á síðasta ári. Yfir­völd brugðust við mótmæl­unum með því að setja á útgöngu­bann sem fylgt var eftir með hervæð­ingu á götum úti. Fjöldi stað­hæf­inga hafa borist um ofbeld­is­fullar aðgerðir gegn mótmæl­endum.

Í nokkrum borgum leiddu mótmælin til ofbeldis og skemmd­ar­verka, þar sem búðir voru rændar og kveikt var í húsum. Stjórn­leysi greip um sig og fréttir bárust af lögreglu­þjónum sem látið höfðu lífið og óhóf­legri beit­ingu ofbeldis. Alls létust sex lögreglu­þjónar og 20 mótmæl­endur og sjón­ar­vottar í borg­unum Freetown, Makeni og Kamakwie.

Í tengslum við mótmæla­ölduna 10. ágúst voru 515 einstak­lingar fang­els­aðir, þar af 200 fyrir brot á útgöngu­banni. Sumir voru hand­teknir seinna vegna tilkomu sönn­un­ar­gagna gegn þeim. Ákærur gegn mótmæl­endum voru af ólíkum toga og gátu verið vegna skemmd­ar­verka, íkveikja, ólög­mætrar fjölda­sam­koma, uppþota og hvatn­ingar til mann­dráps. Einnig var fólk hand­tekið vegna morða á lögreglu­þjón­unum fljót­lega eftir mótmælin. Hins­vegar hefur engin rann­sókn hafist vegna mótmæl­enda sem voru drepnir.

Daginn eftir jarð­arför lögreglu­þjón­anna komu yfir­völd á sérstakri rann­sókn­ar­nefnd. Niður­staða nefnd­ar­innar birtist svo 24. apríl 2023, um að ekki væri full­víst að ásak­anir um ólögmæt mann­dráp væru sannar. Engar hand­tökur hafa verið gerðar vegna mótmæl­enda sem dóu þann 10. ágúst og rann­sókn atburð­anna hefur verið hætt.

Skrifaðu undir ákall um að yfir­völd í Síerra Leóne og sérstök rann­sókn­ar­nefnd stofnuð af yfir­völd­unum þann 24. ágúst 2022, fram­kvæmi með hraði óháða, hlut­lausa og vandaða rann­sókn, ekki aðeins vegna lögreglu­þjóna sem létu lífið heldur einnig vegna meintrar óhóf­legrar vald­beit­ingar lögreglu á mótmæl­unum og í kjölfar þeirra, sem leiddi til meiðsla og dauðs­falla. Einnig þarf að tryggja að þeir sem bera ábyrgð á ólög­mætum mann­drápum, pynd­ingum og annarri illri meðferð verði látnir sæta ábyrgð.

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Sádi-Arabía

Hjálparstarfsmaður dæmdur í 20 ára fangelsi vegna háðsádeilu

Abdulrahman al-Sadhan, 41 árs starfsmaður Rauða hálfmánans (systurfélag Rauða krossins), var handtekinn af yfirvöldum á vinnustað sínum í Sádi-Arabíu þann 12. mars 2018. Hann var meðal annars ákærður fyrir „að undirbúa, geyma og senda út efni sem er skaðvænlegt fyrir allsherjarreglu og trúarleg gildi“ vegna háðsádeilu á Twitter.

Sádi-Arabía

Dæmd í 27 ára fangelsi fyrir að styðja réttindi kvenna

Salma al-Shehab er 34 ára gömul baráttukona, fræðikona og tveggja barna móðir frá Sádi-Arabíu. Hún var ákærð vegna friðsamlegrar tjáningar á Twitter (nú X) til stuðnings réttindum kvenna. Hún var dæmd í 27 ára fangelsi ásamt 27 ára ferðabanni að lokinni afplánun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu sýna enga miskunn gagnvart gagnrýni sama hversu meinlaus hún er.  

Sádi-Arabía

Kennari á eftirlaunum hlaut dauðadóm fyrir gagnrýni

Sérstakur sakamáladómstóll í Sádi-Arabíu dæmdi Mohammad bin Nasser al-Ghamdi, 55 ára kennara á eftirlaunum, til dauða þann 9. júlí 2023 fyrir friðsamlegar aðgerðir sínar á Twitter [nú X] og YouTube. Mohammad bin Nasser al-Ghamdi var dæmdur til dauða fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið. Hann var aðeins með tíu fylgjendur á Twitter.

Sádi-Arabía

Ísland beiti sér gegn skelfilegum mannréttindabrotum í Sádi-Arabíu

Yfirvöld í Sádi-Arabíu leggja allt kapp á að þagga niður í gagnrýnisröddum í landinu. Samfélagsmiðlafærsla þar sem kallað er eftir umbótum í mannréttindamálum eða yfirvöld gagnrýnd getur ein og sér leitt til ferðabanns, fangelsisvistar svo áratugum skiptir eða jafnvel dauðadóms.

Ekvador

Heimatilbúin sprengja fyrir utan heimili ungs umhverfissinna

Leonela Moncayo er umhverfissinni frá Amazon-skóginum í Ekvador og ein af níu stúlkum sem fóru í mál við stjórnvöld þar í landi og kröfðust lögbanns á gasbruna í nágrenni við heimili þeirra á þeim grundvelli að brotið sé á mannréttindum þeirra. Talið að öryggi stúlknanna níu og fjölskyldna þeirra sé í hættu.

Rússland

Listakona afplánar sjö ára dóm á fanganýlendu fyrir mótmæli

Aleksandra (Sasha) Skochilenko er tónlistar- og listakona frá Sankti Pétursborg í Rússlandi. Hún var ákærð á grundvelli ritskoðunarlaga og hlaut sjö ára dóm hinn 16. nóvember 2023. Henni er haldið við skelfilegar aðstæður og heilsu hennar hrakar ört. Skrifaðu undir ákallið og kallaðu eftir því að Rússland afnemi ritskoðunarlögin og leysi Aleksöndru skilyrðislaust úr haldi án tafar.

Rússland

Fjölmiðlakona og tveggja barna móðir sætir illri meðferð í fangelsi

Maria Ponomarenko er fjölmiðlakona og tveggja barna móðir sem sætir illri meðferð í fangelsi. Hún deildi skilaboðum á samskiptamiðlinum Telegram um sprengjuárás rússneskra hersveita á leikhús í Mariupol í mars 2022. Skrifaðu undir og kallaðu eftir því að rússnesk stjórnvöld leysi Mariu Ponomarenko skilyrðislaust úr haldi án tafar.

Rússland

Fólk fangelsað fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu

Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.

Kólumbía

Verndum mannréttindafrömuði í Kólumbíu

Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.