Venesúela

Venesúela: Fellið niður ákærur á hendur pólitískum fanga

Óein­kennisklæddir lögreglu­menn hand­tóku Nicmer Evans, stjórn­mála­fræðing, þann 13. júlí 2020 í Caracas í Venesúela. Þeir eru liðs­menn örygg­is­sveitar hersins (DGCIM) og annarrar sérdeildar innan hersins (CICPC).

Nicmer Evans er í haldi hjá DGCIM og er ákærður fyrir hatursorð­ræðu en hann á að hafa véfengt  stjórn­ar­stefnu Nicolas Maduro á samfé­lags­miðlum. Ríkis­sak­sóknari hefur til 31. ágúst að leggja fram form­lega ákæru eða fella niður málið.

Í skjóli kórónu­veirufar­ald­ursins hefur ríkis­stjórn Nicolas Maduro aukið vald sitt. Aftökur án dóms og laga, geðþótta­hand­tökur og óhófleg beiting valds hefur aukist til muna.

Nicmer Evans var haldið í einangrun til 17. júlí þegar hann var færður fyrir dóm án þess að lögfræð­ingur hans og fjöl­skylda voru látin vita. Hann var ákærður fyrir að dreifa hatursorð­ræðu sem byggir á færslum á samfé­lags­miðlum sem tjá skoð­anir sem eru ekki í takt við hugmynda­fræði Nicolas Maduro. Samkvæmt lögfræð­ing­unum hans voru sann­an­irnar litlar og engin afrit eða skjá­skot af færsl­unum komu fram sem sönn­un­ar­gögn.

Nokkur samtök, bæðin innan­lands og alþjóðleg hafa bent á að lögin gegn hatursorð­ræðu geti verið varhuga­verð en þau voru samþykkt 2017 í umdeildum kosn­ingum.

Varð­hald Nicmer Evans er eitt af mörgum dæmum um kúgun ríkis­stjórn­ar­innar en hún er þekkt fyrir að beita hótunum og pynd­ingum. Undan­farin ár hafa margir andstæð­ingar ríkis­stjórn­ar­innar neyðst til að flýja landið og leita hælis vegna hótana.

Síðan í mars 2020 hafa yfir 5,2 millj­ónir manna flúið landið. Vegna kórónu­veirufar­ald­ursins hafa margir þurft að snúa til baka og þetta fólk á í hættu á refs­ingu.

Krefstu þess að málið verði látið falla niður og Nicmer verði leystur úr haldi.

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Alþjóðlegt

Styddu réttindi verkafólks í fataiðnaði

Í áraraðir hafa stjórnvöld og tískufyrirtæki hagnast á slæmum starfsaðstæðum kvenna sem sauma fötin okkar. Brotið er kerfisbundið á mannréttindum verkafólks í fataiðnaði sem vinnur oft við hættulegar aðstæður, launin eru undir framfærsluviðmiði og ráðningarsamningar eru ótryggir. Laun sem duga ekki fyrir framfærslu þýðir að verkafólkið hefur ekki aðgang að nauðsynjum eins og mat, heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni, menntun og öruggu húsnæði.

Ungverjaland

Skipuleggjandi gleðigöngu á yfir höfði sér ákærur

Géza Buzás-Hábel, sætir sakamálarannsókn fyrir það eitt að hafa skipulagt gleðigönguna í Pécs í Ungverjalandi sem fór fram 4. október síðastliðinn þrátt fyrir bann gegn gleðigöngunni. Amnesty International kallar eftir því að saksóknaraembættið loki tafarlaust rannsókn á málinu þar sem hún brýtur gegn réttinum til friðsamlegrar samkomu, tjáningarfrelsinu og banni gegn mismunun samkvæmt evrópskum og alþjóðlegum mannréttindalögum.

Georgía

Leikari í fangelsi í kjölfar ósanngjarnra réttarhalda

Andro Chichinadze, 29 ára leikari frá Georgíu, var dæmdur í tveggja ára fangelsi 3. september 2025 eftir þátttöku í mótmælum í Tbilisi. Hann er vel þekktur í Georgíu og hefur hann gagnrýnt stjórnvöld opinberlega og verið virkur þátttakandi í mótmælum frá nóvember til desember 2024.