SMS

17. september 2021

Alþjóð­legt: Stöðvið misbeit­ingu kylfa

Um heim allan þagga stjórn­völd niður í mótmæl­endum með lögreglukylfum. Kylf­urnar eru notaðar sem þögg­un­artól.  

Í desember 2020 varð ungur maður í Hvíta-Rússlandi fyrir lögreglu­árás eftir að hafa tekið þátt í frið­sömum mótmælum. Hann var barinn í höfuðið með kylfu og kýldur í andlit og maga, þrátt fyrir að hann streittist ekki gegn hand­töku. 

Þetta er eitt af fjöl­mörgum dæmum um misbeit­ingu þessara vopna, oft gegn frið­sömum mótmæl­endum. 

Rann­sóknir Amnesty sýna að kylfur eru notaðar í refs­ing­ar­skyni. Þær eru notaðar til að berja fólk sem haldið er niðri. Þær eru notaðar til að berja háls og höfuð. Þær eru notaðar til að beita kynferð­is­legt ofbeldi og pynd­ingum. Þetta verður að stöðva. 

Kylfur eru álitnar skaðminni vopn  sem eigi að gera lögreglu kleift að beita hóflegri vald­beit­ingu og komast hjá notkun hættu­legri vopna en rann­sóknir sýna að misbeiting kylfa er algeng. Þrátt fyrir þetta eru engar reglu­gerðir um sölu og viðskipti þessara vopna.    

Skortur er á reglu­gerðum vegna viðskipta með lögreglu­vopn og búnað. Á alls­herj­ar­þingi Sameinuðu þjóð­anna á næsta ári munu ríki greiða atkvæði um ályktun er varðar alþjóð­legan og skuld­bind­andi samning um viðskipti lögreglu­vopna og búnaðar sem hægt er að nota til að beita pynd­ingum og annarri illri meðferð. Samn­ing­urinn myndi einnig banna viðskipti lögreglu­vopna og búnaðar sem í eðli sínu er ætlað að valda skaða, t.d. gadda­kylfur, stífar svipur (e. sjambok), ýmis rafst­uð­stól og niður­lægj­andi eða sárs­auka­fullir fjötrar.  

SMS-aðgera­netið krefst þess að íslensk stjórn­völd styðji gerð alþjóð­legs og skuld­bind­andi samn­ings um viðskipti með lögreglu­vopn og búnað sem eru notuð til að beita pynd­ingum. 

Lestu einnig