Ísrael: Palestínskur lögfræðingur handtekinn fyrir friðsamleg mótmæli
Ahmad Khalefa er ísraelskur ríkisborgari frá Palestínu. Hann er lögfræðingur, baráttumaður fyrir mannréttindum og var nýlega kosinn borgarfulltrúi.
Ahmad Khalefa er ísraelskur ríkisborgari frá Palestínu. Hann er lögfræðingur, baráttumaður fyrir mannréttindum og var nýlega kosinn borgarfulltrúi.
Í kjölfar samþykktar ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem hvatt er til tafarlauss vopnahlés á meðan Ramadan [föstumánuður múslima] stendur yfir sem leiðir til varanlegs vopnahlés ásamt tafarlausrar og skilyrðislausrar lausnar gísla og aukins aðgangs mannúðaraðstoðar að Gaza, lét Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, eftirfarandi orð falla:
Alþjóðadómstóllinn í Haag (ICJ) gaf út bráðabirgðaniðurstöðu þann 26. janúar um að raunveruleg hætta sé á hópmorði á palestínskum íbúum Gaza. Amnesty International kallar á Ísraelsríki að hlíta fyrirskipun Alþjóðadómstólsins og að veita fólki á Gaza skilvirka grunnþjónustu og mannúðaraðstoð án tafar.
Ísraelskar hersveitir hafa síðustu fjóra mánuði beitt palestínskt fólk grimmilegu ofbeldi á hernumda Vesturbakkanum á meðan heimsbyggðin fylgist með ástandinu á Gaza. Hersveitir hafa drepið palestínskt fólk með ólögmætum hætti, meðal annars með óhóflegri og ónauðsynlegri valdbeitingu gegn mótmælendum og við handtöku ásamt því að neita særðu fólki um læknisaðstoð. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Amnesty International.
Íslandsdeild Amnesty International lýsir yfir alvarlegum áhyggjum vegna ákvörðunar ríkisstjórnar Íslands um að frysta fjármögnun til PalestínuflóttamannaaðstoðarSameinuðu þjóðanna (UNRWA) og hvetjum þig til að tryggja að ríkistjórn þín styðji störf UNRWA. Frysting fjármagns eykur á þjáningar rúmlega tveggja milljóna palestínskra flóttamanna, sem skráðir eru flóttamenn hjá UNRWA. Rúmlega 70% íbúa Gaza hafa verið á landflótta síðan árið 1948 en nú vofir yfir öllum íbúum svæðisins yfirgnæfandi hætta á hópmorði.
Ísrael verður að binda enda á grimmilegt hernám Gaza og Vesturbakkans, þar á meðal Austur-Jerúsalem, sem Ísrael hefur viðhaldið síðan 1967, samkvæmt yfirlýsingu Amnesty International nú þegar opinber málsmeðferð hefst hjá Alþjóðadómstólnum í Haag (ICJ) til að kanna lagalegar afleiðingar langvarandi hernáms Ísraels.
Samkvæmt Amnesty International er fyrirskipun alþjóðadómstólsins í Haag um bráðabirgðaráðstafanir vegna málsóknar Suður-Afríku á hendur Ísraels um hópmorð mikilvægt skref sem gæti hjálpað til að veita palestínsku fólki á á Gaza vernd gegn þjáningum og óafturkræfum skaða.
Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Þórunn Pálína Jónsdóttir lögfræðingur deildarinnar afhentu Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra ákall með uppfærðum undirskriftalista um vopnahlé í átökum Ísraels og vopnaðra hópa á Gaza þann 23. nóvember. Í heildina söfnuðust 11.733 undirskriftir. Utanríkisráðherra hafði áður móttekið sama uppfærða listann þann 21. nóvember.
Ísraelsk yfirvöld hafa beitt varðhaldi án dómsúrskurðar, sem er ein tegund varðhalds að geðþótta, í auknum mæli gegn palestínsku fólki á hernumda svæðinu á Vesturbakkanum ásamt því að palestínskir fangar hafa sætt ómannúðlegri og niðurlægjandi meðferð frá 7. október síðastliðnum. Tilvik um pyndingar og dauðsföll í varðhaldi síðasta mánuðinn hafa heldur ekki verið rannsökuð af ísraelskum yfirvöldum samkvæmt Amnesty International.
Amnesty International ítrekar ákall sitt um að óbreyttir borgarar í gíslingu á hernumdum svæðum á Gaza verði leystir úr haldi án tafar og skilyrðislaust. Á meðal gísla eru börn. Hamas og aðrir vopnaðir hópar hafa haldið þeim í gíslingu í mánuð eða frá 7. október. Þúsundir einstaklinga hafa farið út á götur í Ísrael á síðustu dögum til að gagnrýna viðbrögð ísraelskra stjórnvalda og krafist þess að fá ástvini sína aftur heim.
Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Þórunn Pálína Jónsdóttir lögfræðingur deildarinnar afhentu Bjarna Benediktssyni utanríkisráðherra ákall með 6944 undirskriftum þann 3. nóvember. Forsætisráðuneytið fékk einnig undirskriftirnar en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gat ekki veitt þeim viðtöku sökum fjarveru erlendis.
Amnesty International sendir frá sér brýnt ákall um tafarlaust vopnahlé allra aðila á hernumdum svæði Gaza og í Ísrael til að koma í veg fyrir frekara mannfall meðal óbreyttra borgara og til að tryggja aðgang að hjálpargögnum á Gaza þar sem nú ríkir mannúðarneyð af áður óþekktri gráðu.