Aðskilnaðarstefna Ísraels gegn palestínsku fólki: Grimmilegt stjórnkerfi og glæpur gegn mannúð
Það verður að draga ísraelsk yfirvöld til ábyrgðar fyrir aðskilnaðarstefnu þeirra gegn palestínsku fólki, segir í nýrri skýrslu Amnesty International. Aðskilnaðarstefnan er glæpur. Skýrslan greinir frá kerfisbundinni kúgun og yfirráðum Ísraels yfir palestínsku fólki hvar sem mögulegt er að hafa stjórn á réttindum þess. Þetta á við um palestínskt fólk sem býr í Ísrael, á hernumdu svæðum Palestínu og palestínskt flóttafólk í öðrum löndum.

