60 ára afmæli Amnesty International
Í tilefni af 60 ára afmæli Amnesty International stöndum við fyrir viðburði í Pósthússtræti við Austurvöll næstkomandi föstudag, 28. maí klukkan 17:00.
Í tilefni af 60 ára afmæli Amnesty International stöndum við fyrir viðburði í Pósthússtræti við Austurvöll næstkomandi föstudag, 28. maí klukkan 17:00.
Danmörk leggur hundruð flóttafólks í hættu með því að senda það aftur til Sýrlands. Dönsk yfirvöld staðhæfa að höfuðborgin Damaskus og nágrenni hennar séu örugg svæði í Sýrlandi. Þrátt fyrir að loftárásir og átök séu hætt á sumum svæðum, vofir enn hætta yfir þar sem sannanir eru fyrir því að pyndingar, þvinguð mannshvörf og varðhaldsvist eigi sér enn stað í landinu.
Ísraelski herinn hefur sýnt að hann ber enga virðingu fyrir lífi óbreyttra palestínskra borgara í loftárásum sínum á íbúðarhúsnæði. Heilu fjölskyldurnar hafa látið lífið, þar á meðal börn, í árásum sem geta talist stríðsglæpir.
Ísraelskar öryggissveitir hafa beitt óhóflegri, endurtekinni og óréttmætanlegri valdbeitingu gegn palestínskum mótmælendum á hernumdu svæðum Austur-Jerúsalem síðustu daga. Átök hafa stigmagnast og flugskeyti milli vopnaðra palestínskra hópa á Gaza-svæðinu og Ísraels hafa sært fjölda fólks og tugir hafa látist. Meirihlutinn af þeim eru Palestínubúar.
Síðan 28. apríl hafa þúsundir tekið þátt í mótmælum víðsvegar um Kólumbíu. Mótmælin byrjuðu vegna fyrirhugaðra skattalagabreytinga en hafa þróast í mótmæli vegna viðbragða stjórnvalda við efnahags- og félagslegum vandamálum í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Stjórnvöld hafa brugðist við með hervaldi í nokkrum borgum þar sem mótmælendur eru beittir óhóflegu valdi með vopnum sem hefur leitt tugi einstaklinga til dauða og enn fleiri særða.
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty er aftur komin á skrið eftir að hafa legið í dvala yfir veturinn. Ungliðastarfið felst í því að vekja athygli á og kalla eftir aðgerðum í málum sem tengjast mannréttindabaráttu víðsvegar um heim, en einnig að fræðast og fræða aðra um stöðu mannréttinda á Íslandi. Það verður viðburðaríkur maímánuður hjá ungliðahreyfingu Íslandsdeilarinnar og er markmiðið að fá inn fleiri nýja ungliða til að spreyta sig á mannréttindastarfi í sumar.
Þegar Ciham Ali var 15 ára reyndi hún að yfirgefa Erítreu en stjórnvöld handtóku hana. Ekki hefur sést til hennar síðan og nú eru liðin átta ár. Hjálpaðu okkur að finna Ciham og leysa úr haldi.
Í maí hefst ungliðastarf Amnesty International af fullum krafti og ungu fólki á aldrinum 14-24 ára er velkomið að taka þátt.
Að minnsta kosti 41 kona frá Srí Lanka hefur verið í haldi í Sádi–Arabíu í allt að 18 mánuði. Þrjár konur eru með ung börn með sér og ein kona þarf nauðsynlega á læknisþjónustu að halda. Engin þeirra hefur verið upplýst um ákærur gegn þeim né hafa þær fengið lagalega aðstoð.
Amnesty International er alþjóðleg hreyfing tíu milljón einstaklinga um heim allan sem vilja berjast fyrir réttlátum heimi þar sem mannréttindi okkar allra eru virt. Þann 28. maí eru 60 ár frá því að Amnesty International hóf baráttu sína fyrir mannréttindum.
Quinn Moon og Tang Kai-yin, tveir af þeim tólf einstaklingum frá Hong Kong sem handteknir voru í ágúst 2020 af kínversku strandgæslunni, hafa verið í haldi í næstum átta mánuði án þess að hafa fengið að hitta fjölskyldu sína eða lögfræðinga. Fjölskyldur þeirra hafa ítrekað óskað eftir að eiga við þau samskipti án árangurs. Ástand þeirra og heilsufar er mikið áhyggjuefni því bæði eru þau með undirliggjandi sjúkdóma.
Samkvæmt árlegri skýrslu Amnesty International um dauðarefsinguna kom kórónuveirufaraldurinn ekki í veg fyrir aftökur í 18 löndum árið 2020. Þrátt fyrir fækkun á heimsvísu voru nokkur lönd sem beittu dauðarefsingunni og fjölguðu jafnvel aftökum á sama tíma og heimurinn einbeitti sér að því að vernda fólk gegn skæðri veiru.