1.507 niðurstöður

  • Venesúela: Samviskufangi í lífshættu

    Rubén González, aðgerðasinni sem barist hefur fyrir réttindum launþega, var handtekinn að geðþótta þann 29. nóvember 2018. Heilsu hans hans hefur hrakað í fangelsi og hann ekki fengið þá læknisaðstoð sem hann þarfnast. Hann er samviskufangi sem þarf að leysa úr haldi umsvifalaust án skilyrða.

  • Grikkland: Börn á flótta fái aðgang að heilbrigðisþjónustu

    Síðan í júlí 2019 hefur umsækjendum um alþjóðlega vernd og börnum óskráðs flóttafólks verið meinaður aðgangur að opinberri heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Ný lög um alþjóðlega vernd sem kynnt voru í nóvember síðastliðnum hafa komið einhvers konar reglu á málið en skortur á aðgerðaáætlun veldur því að líf og heilsa þúsunda barna og fullorðinna er í hættu.

  • Um Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna og hugtakið „smáríki”

    Kevin Whelan starfsmaður Amnesty International í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf heldur því fram í grein sinni að ekkert ríki sé smáríki. Enn fremur geti ekkert ríki í mannréttindaráðinu kallað sig eða verið kallað smáríki. Tilefni greinarinnar er þátttaka og seta Íslands í mannréttindaráðinu en setu Íslands lauk um seinustu áramót. Greinin hefur verið þýdd úr ensku yfir á íslensku.

  • Venesúela: Stjórnarandstæðingar í hættu

    Fulltrúar og starfsfólk tengt stjórnarandstöðunni í Venesúela hafa orðið fyrir ítrekuðum árásum síðan 20. desember 2019. Aukin hætta er á handtökum að geðþótta og öðrum alvarlegum mannréttindabrotum gegn fulltrúum stjórnarandstöðunnar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Nicolas Maduro, forseti Venesúela og ríkisstjórn hans hafa beitt harðræði til að bæla niður í fulltrúa stjórnarandstöðunnar. Handtökur að geðþótta og þvinguð mannshvörf eru algengar þöggunaraðferðir ríkisstjórnarinnar.

  • Egyptaland: Þrír blaðamenn handteknir af geðþótta

    Þann 29. nóvember 2019 handtóku óeinkennisklæddir lögreglumenn blaðamennina Solafa Magdy, Hossam el-Sayed og Mohamed Salah á kaffihúsi í Kaíró höfuðborg Egyptalands. Farsímar þeirra, tölvur og bílar voru gerð upptæk. Degi síðar voru blaðamennirnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á ákærum á hendur þem. Solafa og Mohamed eru ákærð fyrir „að ganga í hryðjuverkahóp“ og „dreifingu á fölskum fréttum“ á meðan Hossam er ákærður fyrir „félagaaðild að hryðjuverkasamtökum“. Leynilögreglumenn hafa beitt Solafa barsmíðum fyrir að neita að veita aðgang að farsíma sínum. Saksóknarinn framlengdi síðan varðhald þeirra um 15 daga á meðan rannsókn stæði yfir.

  • Kólumbía: Þúsundir frumbyggja þarfnast brýnnar aðstoðar

    Í frumbyggjasamfélagi Bojayá Chocó í Vestur-Kólumbíu er 2.250 manns haldið í herkví af skæruliðahópnum Ejército de Liberación Nacional, ELN og herþjálfaða hópnum Autodefensas Gaitanistas de Colombia. Hóparnir neita frumbyggjunum um aðgang að mat og læknisaðstoð. Við krefjumst þess að kólumbísk yfirvöld setji fram alhliða áætlun til verndar réttindum Bojayá- samfélagsins.

  • Sigrar ársins 2019

    Árangur af starfi Amnesty International og mannréttindabaráttunnar er margs konar. Lög eru sett til verndar mannréttindum, komið er í veg fyrir lagabreytingar sem ógna mannréttindum, réttlæti næst, aftökur eru stöðvaðar, fólk er leyst úr haldi og fyrirtækjum gert að virða mannréttindi. Þátttaka þín í mannréttindabaráttunni skiptir máli.

  • Slóvakía: Réttindi til þungunarrofs í hættu

    Þingið í Slóvakíu ræðir nú lagafrumvarp er varðar skerðingu á réttindum til þungunarrofs. Ef frumvarpið verður samþykkt þurfa konur að uppfylla fjölmörg skilyrði til að gangast undir þungunarrof. Þessi skilyrði eru ekki byggð á læknisfræðilegum forsendumog grafa undir rétti til friðhelgi einkalífs, rétti til mannlegrar reisnar og sjálfsákvörðunarrétti er snýr að heilbrigðisþjónustu. Skilyrðin ýta einnig undir smán og niðurlægingu. Slóvakíska þingið verður að hafna frumvarpinu umsvifalaust.