1.532 niðurstöður

Raða eftir
  • Ungliðar afhentu 2342 undirskriftir vegna mannréttindaástandsins í Íran

    Í gær afhenti Snædís Lilja Káradóttir, fyrir hönd ungliðahreyfingar Íslandsdeildar Amnesty International, Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra undirskriftir 2342 einstaklinga sem skrifuðu undir ákall þar sem krafist er þess að íslensk stjórnvöld veki athygli á stöðu mannréttinda í Íran á alþjóðavettvangi.

  • Gínea: Veikur aðgerðasinni í haldi

    Saïkou Yaya Diallo, aðgerðasinni og aðstoðarmaður lögfræðings hjá stjórnarandstöðuflokknum National Front for the defense of the constitution (FNDC) var handtekinn þann 7. maí og settur í varðhald í Conakry, höfuðborg Gíneu, í kjölfar atviks sem átti sér stað á blaðamannafundi hjá stjórnmálaflokknum. Þann 12. maí var hann kærður fyrir líkamsárás, ofbeldi, hótanir og óspektir á almannafæri. Saïkou er með sykursýki sem krefst sérstaks mataræðis og meðhöndlunar og því í áhættuhópi vegna kórónuveirufaraldursins. Sama dag staðfestu stjórnvöld í Gíneu 58 tilfelli af COVID-19 smitum í fangelsinu og þrjú dauðsföll af völdum veirunnar.

  • Rússland: Læknir á yfir höfði sér málaferli

    Tatyana Revva, læknir frá Volgograd í suðurhluta Rússlands á yfir höfði sér málaferli sem gætu leitt til þess að hún missi lækningaleyfið í kjölfar þess að hún kvartaði yfir skorti á hlífðarbúnaði og öðrum vandamálum  tengdum kórónuveirufaraldrinum á spítalanum þar sem hún starfar. 

  • Íslenskur fulltrúi í alþjóðlegu ungmennaráði

    Íslandsdeild Amnesty International kynnir með stolti fyrsta fulltrúa deildarinnar í Global Youth Collective, alþjóðlegu ungmennaráði Amnesty International. Þórhildur Elísabet Þórsdóttir var valin í byrjun maí sem fulltrúi okkar í ráðinu. Hún hefur verið meðlimur ungliðahreyfingar Íslandsdeildarinnar um langt skeið og sinnt þar ýmsum sjálfboðaliða- og aðgerðastörfum. Hún var formaður stjórnar ungliðahreyfingarinnar frá 2016 til 2019, verið fulltrúi deildarinnar á ráðstefnum og fundum erlendis og stofnaði Háskólafélag Amnesty í Háskóla Íslands ásamt öðrum haustið 2018. Þórhildur situr nú í aðalstjórn Íslandsdeildarinnar og er jafnframt yngsti stjórnarmeðlimurinn en hún var aðeins 19 ára þegar hún var kosin í stjórnina í mars 2019.

  • Kólumbía: Baráttukona í hættu í útgöngubanni

    Þann 17. apríl heyrði Jani Silva sex byssuskot í um 30 metra fjarlægð frá heimili sínu í Puerto Asís í suðvesturhluta Kólumbíu. Fimm dögum síðar heyrði hún þrjú byssuskot, þá í um 50 metra fjarlægð frá heimili sínu. Þessi tvö atvik áttu sér stað eftir að frjálsu félagasamtökin Inter-Ecclesiastical Commission of Justice and Peace fengu upplýsingar um fyrirhugað morð á Jani í lok mars.

  • Afríka: Átök og kúgun leiða til mannréttindabrota

    Fram kemur í ársskýrslu Amnesty International fyrir árið 2019 að mótmælendur í Afríku sunnan Sahara hafi barist fyrir réttindum sínum gegn átökum og kúgun þrátt fyrir hættu á skotárásum eða barsmíðum. Í skýrslunni er greint frá mótmælum og harkalegum viðbrögðum stjórnvalda, mannréttindabrotum og átökum víðsvegar á svæðinu. Herjað var á aðgerðasinna og fjölmiðlafólk og þúsundir óbreyttra borgara þjáðust vegna átaka.