60 ára afmæli Amnesty International
Í tilefni af 60 ára afmæli Amnesty International stöndum við fyrir viðburði í Pósthússtræti við Austurvöll næstkomandi föstudag, 28. maí klukkan 17:00.
Í tilefni af 60 ára afmæli Amnesty International stöndum við fyrir viðburði í Pósthússtræti við Austurvöll næstkomandi föstudag, 28. maí klukkan 17:00.
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty er aftur komin á skrið eftir að hafa legið í dvala yfir veturinn. Ungliðastarfið felst í því að vekja athygli á og kalla eftir aðgerðum í málum sem tengjast mannréttindabaráttu víðsvegar um heim, en einnig að fræðast og fræða aðra um stöðu mannréttinda á Íslandi. Það verður viðburðaríkur maímánuður hjá ungliðahreyfingu Íslandsdeilarinnar og er markmiðið að fá inn fleiri nýja ungliða til að spreyta sig á mannréttindastarfi í sumar.
Í maí hefst ungliðastarf Amnesty International af fullum krafti og ungu fólki á aldrinum 14-24 ára er velkomið að taka þátt.
Amnesty International er alþjóðleg hreyfing tíu milljón einstaklinga um heim allan sem vilja berjast fyrir réttlátum heimi þar sem mannréttindi okkar allra eru virt. Þann 28. maí eru 60 ár frá því að Amnesty International hóf baráttu sína fyrir mannréttindum.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að síðastliðinn þriðjudag, þann 23. mars, hafi verið samþykkt ályktun í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda í Íran, sem ríkjahópur undir forystu Íslands lagði fram. Umrædd ályktun tryggir áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til að fylgjast með og upplýsa mannréttindaráðið reglulega um stöðu mannréttinda í Íran.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International var haldinn 17. mars síðastliðinn á skrifstofu samtakanna. Fundurinn fór einnig fram á vefnum en er þetta í annað sinn sem boðið var upp á fjarfund. Góð mæting var á fundinn. Eins og venja er var ársskýrsla deildarinnar flutt og ársreikningar kynntir sem voru síðan bæði samþykkt á fundinum.
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 2020 er komin út og verður kynnt á aðalfundi í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, miðvikudaginn 17. mars 2021 kl. 17:00.
Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli á viðburði sem fer fram í kvöld fimmtudag, 11. mars, kl. 20.15 á leik KR og Vals í Dominosdeild karla í körfubolta í DHL höllinni.
Aðalfundur Amnesty International verður haldinn miðvikudaginn 17. mars 2021 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Háteigsskóli og Alþjóðaskólinn á Íslandi eru Mannréttindagrunnskólar ársins 2020 og hlutu nú í febrúar viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í grunnskólakeppni Íslandsdeildar Amnesty International og titilinn Mannréttindagrunnskóli ársins. Þetta er þriðja árið í röð sem skólarnir sigra keppnina hvor í sínum flokkinum. Þá hlutu Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn á Húsavík viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í framhaldsskólakeppni samtakanna.
Eftirtalin félög skora á íslensk stjórnvöld að fullgilda Samning Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum en samningurinn var samþykktur af 122 ríkjum á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York þann 7. júlí 2017. Hinn 24. október sl. höfðu 50 ríki fullgilt samninginn og mun hann því taka gildi í dag, þann 22. janúar 2021.
Þitt nafn bjargar lífi 2020 gekk vonum framar en samtals söfnuðust 70.405 undirskriftir til stjórnvalda á vefsíðu Íslandsdeildar Amnesty International sem er rúmlega það markmið sem deildin stefndi að og er met í fjölda rafrænna undirskrifta á vefsíðunni fyrir þessa árlegu herferð.