Íran: Yfir 20 einstaklingar eiga í hættu á að vera teknir af lífi
Yfir 20 einstaklingar eiga á hættu að vera teknir af lífi í tengslum við mótmæli í Íran. Yfirvöld hafa nú þegar tekið mótmælendur af lífi eftir óréttlát sýndarréttarhöld í þeim tilgangi að vekja ótta á meðal almennings og enda mótmæli í landinu.

