Tjáningarfrelsið er ekki hátt skrifað hjá stjórnvöldum í Nígeríu og hefur fjölmiðlafrelsi stöðugt átt undir högg að sækja allt frá árinu 2015. Fjölmiðlafólk sætir hótunum, árásum, geðþóttahandtökum, fangelsun og jafnvel dauðadómi á grundvelli hryðjuverkalöggjafar. Oft er það þvingað til að gefa upp heimildarmenn sína sérstaklega ef fréttaumfjöllunin tengist spillingu eða kosningum. Enginn er látinn sæta ábyrgð á mannréttindabrotum gegn fjölmiðlafólki og réttarúrbætur ekki aðgengilegar.
Herferð til verndar tjáningarfrelsinu
Amnesty International í Nígeríu ýtti úr vör herferðinni #TalkYourTruth til verndar tjáningarfrelsisinu þar í landi í maí 2021, þar sem gagnrýnendur, fjölmiðlafólk og einstaklingar sem tjá sig um málefni í andstöðu við stefnu stjórnvöld standa frammi fyrir ógnunum, hótunum og jafnvel handtökum af hálfu öryggissveita.
„Það er ólíðandi að einstaklingar sem tjá sig í Nígeríu á gagnrýninn hátt um stjórnvöld þurfi að standa frammi fyrir hótunum, árásum, geðþóttahandtökum, pyndingum, varðhaldi og málsóknum vegna upploginna sakargifta og misbeitingu laga gegn hryðjuverkum og netglæpum. Nígeríubúar verða að geta tjáð skoðanir sínar án ótta,“ segir Osai Ojigho, framkvæmdastjóri Amnesty International í Nígeríu.
Herferðin beinir m.a. athygli á eftirfarandi málum:
Yahaya Shariff Aminu er enn í varðhaldi í maí 2021 en hann var upprunalega dæmdur til dauða fyrir guðlast vegna hljóðupptöku sem hann deildi í gegnum WhatsApp.
Salihu Tanko Yakassaipopularly, þekktur sem Dawisu, var handtekinn af leynilögreglu Nígeríu fyrir tíst þar sem hann harmaði aukið öryggisleysi í landinu þegar hann fordæmdi mannrán á 300 skólastúlkum.
Jaafar Jaafar, rannsóknarblaðamaður, flúði Nígeríu vegna líflátshótana sem hann fékk fyrir að varpa ljósi á meinta spillingu stjórnvalda.
Abubakar Idris ( Dadiyata) gagnrýndi nígerísk stjórnvöld og var rænt af vopnuðum mönnum af heimili sínu í Kaduna í ágúst 2019. Enn er ekki vitað hvar hann í maí 2021.
Fjölmiðlafrelsi verulega skert
Árásir gegn fjölmiðlafólki auk bloggara eru algengar í Nígeríu en alls sættu 19 einstaklingar árásum vegna starfa sinna á tímabilinu janúar til september 2019. Fjölmiðlafólk getur orðið fyrir hótunum eða líkamlegu ofbeldi, oftast af hálfu lögreglu, öryggissveita, hers eða leyniþjónustu landsins. Árásirnar eiga sér oftast stað þegar fjölmiðlafólk leitar upplýsinga eða birtir umfjallanir í óþökk stjórnvalda.
Fjölmiðlafólk sætir einnig oft refsingum, sérstaklega þegar það tjáir skoðanir sem eru óvilhallar stjórnvöldum í viðkvæmum samfélagsmálum. Ein birtingarmynd bælingar á tjáningarfrelsinu fjölmiðlafólks er þegar það er þvingað af yfirvöldum til að gefa upp heimildarmenn sína, oftast fyrir fréttir sem tengjast spillingu, kosningum eða vopnuðum átökum. Fjölmiðlafólk getur ýmist sætt eftirliti eða er hótað lífláti.
Nígerísk stjórnvöld láta undir höfuð leggjast að rannsaka mál sem tengjast geðþóttahandtökum, varðhaldi og lögsóknum gegn fjölmiðlafólki sem verður til þess að hinir ábyrgu eru ekki sóttir til saka fyrir mannréttindabrot.
Í skýrslu Amnesty International Endangered voices: Attack on freedom of expression frá árinu 2019 tjáði fjöldi fjölmiðlafólks, sem sætt hafði geðþóttahandtöku og varðhaldi, samtökunum frá því að það hafi þolað pyndingar og þrýsting um að skrifa undir játningu sem síðar var notuð gegn því í rétti. Það stóð frammi fyrir ákærum á borð við „meiðyrði“, „hryðjuverk“, „rafrænt einelti“, „mannrán“ og „stuld á opinberum gögnum“. Þá er margt fjölmiðlafólk sótt til saka á grundvelli laga um netglæpi og hryðjuverk sem samþykkt voru árið 2013.
Refsing á grundvelli hryðjuverkalaga getur falið í sér dauðadóm sem gerir fjölmiðlastarfið einstaklega áhættusamt í Nígeríu. Í þeim tilvikum sem fjölmiðlafólk sækist eftir skaðabótum vegna mannréttindabrota sem það hefur mátt þola hafa yfirvöld hunsað dómsúrskurði sem kveða á um bætur og staðið í vegi fyrir aðgengi að réttarkerfinu og réttinum til réttarúrbóta.
Alþjóðlegu samtökin, Fréttamenn án landamæra, sem þrýsta á um upplýsinga- og fjölmiðlafrelsi, skipuðu Nígeríu neðarlega á lista yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum eða í sæti 120 af 180 samkvæmt skýrslu samtakanna árið 2019. Auk þess er netfrelsi neðarlega á lista.
Einstaklingsmál fjölmiðlafólks
Jones Abiri er útgefandi dagblaðsins, Weekly Source, sem dreift er í Bayelsa-fylki á óseyrum Nígerfljóts þar sem olíuframleiðsla er mikil. Hann var handtekinn af leyniþjónusta Nígeríu (DSS) í júlí 2016 og var í varðhaldi í tvö ár án ákæru vegna útgáfu greinar hans um olíustíflu og stjórnmál á svæðinu. Jones var leystur úr haldi þann 15. ágúst 2018 en átta mánuðum síðar var hann handtekinn að nýju og ákærður fyrir netglæp, hryðjuverk og skemmdarverk. Jones sat í þetta sinn í varðhaldi í sjö daga þar sem hann var þvingaður til skrifa undir játningu þess efnis að hann væri vígamaður.
„Ég var pyndaður, barinn og látinn þola gífurlegan sársauka. Þeir sögðu að ef ég myndi játa á mig hvern þann glæp sem þeir klíndu á mig yrði mér sleppt ella myndi ég sæta margvíslegri illri meðferð. Þeir vildu að játaði aðild mína að hópi sem kallast Joint Niger Delta Liberation Force, hópi sem ég tengdist ekkert og ég vissi ekkert um. Þeir hótuðu að draga af mér neglur á fingrum og stinga nálum í kynfæri mín.“
Jones hlaut loks frelsi í lok október 2019 gegn tryggingu.
Kofi Bartels starfar sem útvarpsmaður í Port-Harcourt. Sérsveitarmenn réðust á Kofi í júní 2019. Hann var handtekinn í framhaldinu, settur í varðhald og pyndaður fyrir að reyna að mynda lögregluofbeldi gegn unglingi í Port-Harcourt. Kofi var færður í aðalstöðvar herdeildarinnar í Port Harcourt þar sem hann var yfirheyrður og sætti pyndingum í fimm klukkustundir samfleytt. Hann missti tímabundið heyrn af völdum barsmíða.
„Ég tók fram símann minn og byrjaði að taka upp myndband en á meðan tók einn sérsveitarmaðurinn upp viðarplanka og hóf að berja mig í hnén. Síðan skipuðu þeir mér að fara inn í strætisvagn þar sem þeir handjárnuðu mig og héldu áfram að berja mig.“
Mary Ekere, blaðakona hjá blaðinu The Post í Akwa í Suður-Nígeríu, var handtekin í september 2019 fyrir að mynda ofbeldi gegn götusölum af hálfu aðila á vegum umhverfisverndarskrifstofu fylkisins. Hún var færð í bíl, síminn tekinn af henni og einn mannanna gaf henni olnbogaskot í bringuna. Mary var síðan færð í fangaklefa þar sem hún sat í þrjá daga án matar og drykkjar. Samfangi hennar, sem var handtekinn sama dag, lánaði Mary farsímann sinn og hafði hún samband við bróður sinn sem lét vinnuveitenda Mary vita af varðhaldsvistinni. Mary var leyst úr haldi á fjórða degi gegn tryggingu.
„Ég vil sjá réttlætinu fullnægt gagnvart öllu því ranglæti sem ég hef mátt þola. Ég var heppin því mér tókst að hafa samband við fólk utan fangelsisins en ég vissi af fólki sem sat á bak við lás og slá í rúmlega fimm ár og enginn vissi hvar það var niðurkomið. Ég hefði auðveldlega getað endað í sömu sporum. Hvað hefði gerst ef ég væri ekki blaðakona og enginn hefði talað mínu máli? Hver hefðu örlög mín verið? Hver verður næsta fórnarlamb? Þessu þarf að svara.“
Obinna Don Norman er rannsóknarblaðamaður og eigandi fréttamiðils á netinu, The Realm News í Lagos. Lögregla handtók Norman í mars 2019 á meðan hann tók þátt í umræðuþætti á útvarpsstöð í Umuahia, í Abia-fylki í Suðaustur-Nígeríu vegna umfjallana um spillingu yfirvalda.
Hann var ákærður fyrir neteinelti undir lögum um netglæpi, fyrir að birta og senda móðgandi og fölsk skilaboð á netinu, uppreisnaráróður og fjárkúgun. Norman var í varðhaldi í fimm klukkustundir án aðgengis að lögfræðingi. Við réttarhöldin þegar lögfræðingur Normans var loks viðstaddur kom í ljós að frekari ákærur höfðu verið lagðar fram gegn honum þeirra á meðal, mannrán, ólögleg varsla skotvopna og að egna til ofbeldis. Hann var dæmdur til að sitja í fangelsi fram til 24. apríl 2019 og ákærur gegn honum höfðu ekki enn verið felldar niður í ágúst 2020.
„Allt frá árinu 2008 hef ég greint frá þeim fjármunum sem Abai-fylki hefur safnað í sjóði sem ríkjasambandið hefur úthlutað. Ég hef greint frá þessu nokkru sinnum bæði í The Realm News og á Facebook-síðu minni. Ég hef einnig skrifað nokkrar greinar um hversu marga samninga yfirvöld í Abai-fylki fullyrða að hafa verið gerðir við verktaka en voru aldrei uppfylltir jafnvel þó að samningarnir hafi verið samþykktir og formlega tilkynntir í útvarpi. Ráðamenn voru ósáttir við afhjúpanir mínar enda hafði enginn boðið þeim byrginn í fjölda ára. Í lengri tíma var ekki fjallað um spillinguna á svæðinu. Árásir gegn fjölmiðlafólki í Nígeríu eru árásir á frelsi og lýðræði því án fjölmiðlafrelsis getur lýðræði ekki lifað af.“
Skyndiáhlaup á fjölmiðlafyrirtæki
Öryggissveitir Nígeríu gera reglulega skyndiáhlaup af handahófi á fjölmiðlafyrirtæki, einkum í eigu einkaaðila.
Lögregla og her standa líka oft að baki skyndilegum áhlaupum í húsakynni fjölmiðlafyrirtækja án viðvarana eða leitarheimilda. Í þessum árásum er farið fram með offorsi, prentun dagblaða og skrifstofutæki, eins og farsímar og tölvur eru gerð upptæk eða eyðilögð.
Í byrjun árs 2019 réðist hópur vopnaðra manna á vegum lögreglu, hers og öryggisþjónustu ríkisins inn í höfuðstöðvar dagblaðsins Daily Trust í Abuja, höfuðborg Nígeríu. Stjórnendahópur blaðsins greindi Amnesty International frá því að öllu hafi verið umturnað á skrifstofum þeirra og tölvur og farsímar gerðir upptæk. Þá hafi öllu starfsfólki verið skipað að færa sig niður í kjallara og þaðan út úr byggingunni. Að því loknu var byggingin innsigluð. Enginn slasaðist í aðgerðunum en starfsfólkið var í áfalli eftir þær.
Einn úr stjórnendahópi blaðsins lét eftirfarandi orð falla:
„Ef rannsóknarblaðamennsku er sinnt sem snýr að viðkvæmum hópum í samfélaginu og fjallað um neyðarástand eða stjórnarhætti í landinu er ljóst að traðkað er á tám yfirvalda. Oftast er mjög erfitt að nálgast opinbera aðila til að fá þeirra hlið á sögunni. Ef blaðamaður gefur fréttina engu að síður út lendir hann nánast undantekingarlaust í vandræðum. Yfirvöld kunna að hóta málsókn, árás á fjölmiðilinn eða handtöku ef fréttin er ekki dregin til baka. Brýn þörf er á því að fjölmiðlastéttin njóti tjáningarfrelsis og hafi aðgang að upplýsingum og frelsi til að starfa án ótta.“
Lögregla handtók einnig í janúar 2019 Dapo Olorunyomi, útgefanda fréttaveitunnar Premium Times á netinu og fréttaritarann, Evelyn Okakwu, í skyndiáhlaupi lögreglu gegn fréttaveitunni. Áhlaupið átti sér stað í framhaldi af birtingu fréttar um yfirmann nígeríska hersins sem var ásakaður um að eiga þó nokkrar eignir í Dubai sem ekki höfðu verið taldar fram til skatts en það stríðir gegn siðareglum hersins. Eftir að lögregla hafði gert allar tölvur upptækar var Dapo fyrirskipað að draga fréttina til baka vegna ærumeiðinga. Þá beitti lögregla einnig annars konar hótunum og talaði um að alvarlegar afleiðingar myndu fylgja í kjölfar þess að birta fréttina.
Bæði Dapo og Evelyn voru færð á lögreglustöð í Garki þar sem þau voru yfirheyrð og m.a. krafin um að gefa upp heimildarmenn sína. Fréttin um handtöku þeirra spurðist fljótt út sem varð til þess að þau voru leyst úr haldi sama dag en voru tilneydd til að mæta næsta dag til að ná samkomulagi við lögmann hersins. Dapo var fyrst um sinn staðráðinn í að halda sínu striki og birta fréttina um yfirmann hersins en síðar lét hann undan eftir þrýsting frá lögmanni hersins.
Evelyn tjáði Amnesty International að eftir þetta atvik er hún mjög vör um sig og forðast að birta fréttir um herinn þar sem honum er í sjálfsvald sett að handtaka og ógna fjölmiðlafólki;
„Starfsumhverfi fjölmiðlafólks er óvinveitt. Ógnin er raunveruleg. Lögum um netglæpi, sem samþykkt voru árið 2016, er iðuleg beitt til að sækja fjölmiðlafólk til saka sem er einfaldlega að vinna vinnuna sína. Mér líður mjög illa. Yfirvöld fylgjast með því sem við gerum, hverja við tölum við og hlera jafnvel símana okkar. Fjölmiðlafólk vill fremur verja tíma með fjölskyldum sínum en í fangelsi vegna vinnu sinnar.“
Að morgni dags í maí mættu rúmlega 30 óeinkennisklæddir menn, fjöldinn allur af lögreglumönnum og embættismenn á vegum eftirlitsstofnunar Nassarawa-fylkis fyrir framan einkarekið útvarpshús í Laifa. Hinum megin götunnar var búið að koma jarðýtu fyrir sem notuð var síðar sama dag til að rífa stóran hluta útvarpshússins niður. Fjöldi fólks hafði safnast saman til að fylgjast með gangi mála en lögreglan hóf skothríð að mannsöfnuðinum um leið og jarðýtunni var stefnt að útvarpshúsinu og áttu viðstaddir fótum sínum fjör að launa. Útvarpshúsið var illa útleikið og allt innanstokks var eyðilagt.
Yfirlýst ástæða þess að húsið var eyðilagt var meint brot útvarpsstöðvarinnar á jarðalögum. Eyðileggingin átti sér stað aðeins örfáum dögum eftir að stöðin útvarpaði þætti þar sem saman voru komnir fulltrúar á vegum ríkisins og stéttarfélags í Nassarawa-fylki til að ræða verkfallsaðgerðir stéttarfélagsins vegna ógreiddra launa verkamanna í félaginu.
Starfsmaður útvarpsstöðvarinnar sagði eftirfarandi við Amnesty International í framhaldi af eyðileggingunni:
„Þetta mál skapar vont fordæmi fyrir frjálsa fjölmiðlun í Nígeríu því þetta þýðir að ef stjórnvöld eru ósátt við störf fjölmiðlafólks geta aðilar á þeirra vegum elt það uppi og það sem verra er, komist upp með það refsilaust.“
Enda þótt hæstiréttur Lafia í Nassarawa-fylki hafi úrskurðað skaðabætur þar sem að eyðileggingin á útvarpshúsinu hafi verið ólögmæt, rætin og í ósamræmi við stjórnskipunarlög hafa yfirvöld ekki orðið við því.
Tengt efni
Allt starf Amnesty International er fjármagnað og drifið áfram af einstaklingum eins og þér. Hvert framlag — hver aðgerð vegur þungt.
Styrktu & skrifaðu undir áköll með símanum
Einfalt og áhrifaríkt aðgerðanet
Vertu með í netákallinu, þar sem meðlimir fá tilkynningar í tölvupósti um alvarleg mannréttindarbrot sem krefjast tafarlausra viðbragða.
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu