Aðgerðasinni í haldi fyrir að sýna mynd af Dalai Lama

Zhang Yi er aðgerðasinni og mannréttindafrömuður frá Wuhan í Kína. Hann var handtekinn í Lhasa í Tíbet þann 1. júlí 2026 fyrir að sýna mynd af Dalai Lama í farsíma sínum þegar hann heimsótti Sera-klaustrið með yngri bróður sínum. Hann sýndi tíbetskum trúariðkanda myndina til að gefa til kynna að hann vildi fá lánaða bænamottu.

Samkvæmt upplýsingum sem Amnesty International hefur undir höndum virðist óeinkennisklæddur lögreglumaður hafa tekið eftir þessum samskiptum. Stuttu síðar var hann handtekinn af lögreglu. Hann var formlega úrskurðaður í varðhald þann 28. júlí vegna gruns um „hvatningu til aðskilnaðar“. Hann er í haldi fyrir það eitt að nýta mannréttindi sín með friðsamlegum hætti. Zhang Yi er með fötlun og óttast er um velferð hans í haldi. Hann hefur hvorki fengið að vera í samskiptum við fjölskyldu sína né lögmann.

Lengi barist fyrir mannréttindum

Zhang Yi tók þátt í lýðræðishreyfingu á mótmælum á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Í kjölfarið var hann handtekinn og var í haldi í tvö ár. Að sögn sætti hann pyndingum og annarri illri meðferð í fangelsinu sem leiddi til þess að hann missti heyrn á öðru eyra og heyrnin á hinu skertist. Þrátt fyrir langvarandi heilsufarsvanda hefur hann haldið áfram að berjast fyrir mannréttindum og lýðræði.

Ný lög um einingu þjóðernishópa

Yfirvöld hafa ekki upplýst opinberlega um grundvöll ásakana á hendur honum. Zhang Yi var handtekinn sama dag og ný lög um einingu þjóðernishópa tóku gildi. Í lögunum eru víðtæk og óljós ákvæði um að efla „einingu þjóðernishópa“ og sameiginlega þjóðarvitund. Ákvæði í lögunum gefa auknar lagalegar heimildir til að skerða mannréttindi eins og trúfrelsi, skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi.

Misbeiting á ákvæði í lögum

Amnesty International hefur einnig ítrekað bent á að kínversk yfirvöld beiti ákvæðum um „hvatningu til aðskilnaðar“ gegn Tíbetum og öðrum sem nýta mannréttindi sín. Á meðal þeirra eru einstaklingar sem hafa verið málsvarar tíbetskukennslu, tjáð skoðanir um tíbetska menningu og trú eða deilt upplýsingum um Dalai Lama.

Hvað getur þú gert?

Skrifaðu undir og krefstu þess að Zhang Yi verði skilyrðislaust leystur úr haldi án tafar og allar ákærur á hendur honum felldar niður. Að auki er þess krafist að hætt verði að beita lögum eins og lögum um einingu þjóðernishópa til að skerða mannréttindi.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.