Palestínskir íbúar Zanuta fái að snúa aftur til þorpsins síns á Vesturbakkanum

Palestínskir íbúar þorpsins Zanuta í Suður-Hebronhæðum á Vesturbakkanum voru þvingaðir af heimilum sínum í október 2023 vegna ofbeldis landtökufólks. Ísraelska lögreglan og herinn hafa ítrekað og af ásettu ráði ekki hjálpað fólkinu að snúa aftur heim með öruggum hætti eða verndað það gegn ofbeldi landtökufólks, eins og þeim ber skylda til samkvæmt alþjóðalögum. 

Eitt af fjölmörgum palestínskum samfélögum

Samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum er Zanuta eitt af 121 palestínsku samfélagi á Vesturbakkanum, þar sem allir eða hluti íbúa voru hraktir á brott af heimilum sínum á tímabilinu janúar 2023 til júlí 2026. Flest samfélögin eru bedúínar eða palestínsk samfélög sem byggja afkomu sína á búfjárhaldi. Áður en íbúar Zanuta voru þvingaðir á brott af heimilum sínum bjuggu þar 250 Palestínubúar, þar á meðal 100 börn. Lífsviðurværi þeirra byggðist að mestu á fjárbúskap, mjólkurframleiðslu og landbúnaði.

Landtökubyggðir umkringja þorpið

Frá árinu 2021 hefur landtökufólk umkringt þorpið með landtökubyggðum án formlegs leyfis ísraelskra stjórnvalda. Ofbeldið jókst til muna með landtökubyggðunum og þá einna helst með komu Meitarim Farm- býlisins sem stofnað var af Yinon Levi. Það varð til þess að Bretland og Bandaríkin beittu refsiaðgerðum gegn Yinon Levi og býlinu, meðal annars með ferðabanni og frystingu eigna.

Auknar árásir

Eftir 7. október 2023 fjölgaði árásum landtökufólksins verulega. Þær urðu alvarlegri og áttu sér stað nánast daglega í Zanuta. Kveikt var í eigum, brotist inn á heimili þeirra, börn barin með rifflum og skólpi dælt á ræktunarland. Lögreglan sinnti ekki símtölum íbúa. Vegna ótta um eigið öryggi flúðu allir íbúar Zanuta þann 1. nóvember 2023 og hafa ekki getað snúið aftur heim þrátt fyrir fjölmargar tilraunir. Í hvert sinn sem þau hafa reynt hefur þeim verið mætt með ofbeldi.

Úrskurður hæstaréttar Ísraels

Hæstiréttur Ísraels hefur í tvígang úrskurðað í málinu, íbúum Zanuta í hag. Annars vegar í júlí 2024 og aftur í febrúar 2025 þar sem yfirvöldum í Ísrael var fyrirskipað að tryggja að fólkið frá Zanuta gæti snúið aftur heim með öruggum hætti.

Hvað getur þú gert?

Skrifaðu undir og krefstu þess að ísraelsk yfirvöld verndi íbúa Zanuta gegn ofbeldi og tryggi að þeir geti snúið aftur heim til að endurbyggja heimili sín og innviði þorpsins. Að auki þurfa ísraelsk yfirvöld að fjarlægja landtökubyggðir af landi Zanuta.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.