Kambódía þarf að flytja þolendur svikamiðstöðva aftur heim

Þúsundir einstaklinga hvaðanæva úr heiminum hafa sætt mansali í Kambódíu. Margir þeirra komast ekki í burtu, sæta pyndingum og eru þvingaðir til að taka þátt í netsvikum í svikamiðstöðvum. Stjórnvöld í Kambódíu segjast hafa lokað rúmlega 250 svikamiðstöðvum en skýrsla Amnesty International sýnir að lögregla og glæpagengi hafa átt í leynilegu samráði til að komast hjá lögregluaðgerðum. Komið er fram við þolendur mansals og annarra alvarlegra brota á mannréttindum eins og glæpafólk. Yfirvöld í Kambódíu verða að grípa til skilvirkra aðgerða til að styðja og vernda þolendur svikamiðstöðva. Tryggja þarf þeim öruggt skjól eða heimför fyrir þá sem þess óska. 

Pyndingar og ill meðferð í svikamiðstöðvum

„Ég var handjárnuð við stól og látin standa í tvo daga. Við vorum barin og síðan færð inn í bíl.“

Winta, þolandi svikamiðstöðva

Winta (dulnefni) frá Austur-Afríku var lokkuð með fölsku atvinnutilboði og hneppt í mansal þegar hún var 16 ára gömul. Hún sætti mansali í svikamiðstöðvum í Srí Lanka, Mjanmar og Laos frá árinu 2018. Að lokum var farið með hana gegn vilja hennar til Kambódíu þar sem hún var látin vinna í fjölmörgum svikamiðstöðvum. Þar sætti hún pyndingum og annarri illri meðferð og var neydd til að taka fremja netsvik

Henni var síðan sleppt og hún skilin eftir án nokkurra skilríkja. Í stað þess að fá aðstoð var henni hótað af lögreglu. Þrátt fyrir lögreglurannsóknir á svikamiðstöðvunum hefur Winta aldrei verið skilgreind af yfirvöldum sem þolandi mansals. Hún fær því engan stuðning frá ríkinu og hefur engan samastað.

Svikastarfsemi í Suðaustur-Asíu

Svikastarfsemi í Suðaustur-Asíu óx út frá spilavítum og fjárhættustarfsemi á netinu sem tengjast kínverskum glæpasamtökum. Þegar kórónuveirufaraldurinn raskaði þeirri starfsemi færðu samtökin sig yfir í netsvik. Efnahagsþrengingar ýttu jafnframt undir  mansal. Kambódía,  Mjanmar og Laos eru helstu miðstöðvar þessarar starfsemi. Hún hefur færst verulega í aukana frá árinu 2020 vegna skorts á fullnægjandi löggæslu, veikleika í stjórnsýslu og spillingar.

Frá því í júlí 2025 hafa kambódísk stjórnvöld sagst hafa lokað meira en 250 svikamiðstöðvum, 1.089 grunaðir einstaklingar sæta lögreglurannsókn og 13.039 erlendum ríkisborgurum sem tengjast netsvikum hefur verið vísað úr landi.

Rannsókn Amnesty International

Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda dregur rannsókn Amnesty International í efa árangur þessara aðgerða og lýsir áhyggjum af því að þær geti valdið þolendum frekari skaða. Samkvæmt nýjustu rannsókn Amnesty International, sem er byggð á vitnisburði 73 þolenda, sæta þolendur enn nauðungarvinnu, pyndingum og kynferðisofbeldi.

Þolendur sem sleppa frá svikamiðstöðvunum, annaðhvort með því að flýja eða vegna lögregluaðgerða, fá enga aðstoð, eins og að leita réttar síns eða snúa aftur heim til sín. Rannsókn Amnesty International sýnir einnig fram á að líkur eru á því að lögregla eigi í leynilegu samstarfi við þá sem reka svikamiðstöðvarnar og yfirvöld á svæðinu, sem að öllum líkindum grefur verulega undan árangri lögregluaðgerða.

Hvað getur þú gert?

Skrifaðu undir til að krefjast þess að forsætisráðherra og innanríkisráðherra Kambódíu grípi til aðgerða, tryggi rannsókn á svikamiðstöðvum og loki þeim ásamt því að vernda og aðstoða þolendur mansals. 
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.