Íran

Hætta er á fleiri aftökum í tengslum við mótmæli

Að minnsta kosti tíu einstak­lingar í Íran eiga yfir höfði sér aftöku í kjölfar dauða­dóma í tengslum við mótmæli sem áttu sér stað víðs vegar um landið í sept­ember til desember 2022 í uppreisn sem kennd var við slag­orðið „Kona, líf, frelsi“. Sumir þeirra hafa verið beittir pynd­ingum og annarri ómann­úð­legri meðferð, svo sem barsmíðum, raflosti og kynferð­is­legu ofbeldi.

Írönsk yfir­völd hafa nú þegar tekið tíu einstak­linga af lífi sem voru dæmdir til dauða í tengslum við mótmælin í kjölfar sýnd­ar­rétt­ar­halda. Áhyggjur eru um frekari aftökur í aftöku­hrinu yfir­valda. Frá því að uppreisnin hófst árið 2022 hafa írönsk yfir­völd beitt dauðarefs­ing­unni í auknum mæli til að vekja ótta hjá fólki og herða valdatök sín. Árið 2023 tóku írönsk yfir­völd að minnsta kosti 853 einstak­linga af lífi sem er 48% aukning frá árinu 2022. Árið 2024 héldu írönsk yfir­völd áfram að beita dauðarefs­ing­unni, þar með talið á gegn minni­huta­hópum og mótmæl­endum.

Dauðarefs­ingin hefur bitnað hlut­falls­lega verst á einstak­lingum af þjóð­ar­brotinu Baluchi, sem eru einungis 5% íbúa í Íran en 20% þeirra einstak­linga sem teknir voru af lífi árið 2023 voru Baluchi.

Amnesty Internati­onal fordæmir dauð­refs­inguna og er alfarið á móti henni í öllum tilfellum án undan­tekn­inga. Dauðarefs­ingin er brot á rétt­inum til lífs sem kveðið er á um í Mann­rétt­inda­yf­ir­lýs­ingu Sameinuðu þjóð­anna.

Skrifaðu undir ákall um að írönsk stjórn­völd ógildi dauða­dóma yfir frið­sama mótmæl­endur og leysi úr haldi þá mótmæl­endur sem eru í haldi fyrir það eitt að tjá sig með frið­sam­legum hætti.

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Íran

Hætta er á fleiri aftökum í tengslum við mótmæli

Að minnsta kosti tíu einstaklingar í Íran eiga yfir höfði sér aftöku í kjölfar dauðadóma í tengslum við mótmæli sem kennd voru við slagorðið „Kona, líf, frelsi“. Skrifaðu undir ákall um að írönsk stjórn­völd ógildi dauðadóma yfir friðsama mótmælendur og leysi úr haldi þá mótmæl­endur sem eru í haldi fyrir það eitt að tjá sig með frið­sam­legum hætti.

Bandaríkin

Hætta steðjar að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Bandaríkjunum

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur heitið því að hrinda í framkvæmd áform um brottvísanir sem beinast að milljónum innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Bandarískum stjórnvöldum ber skylda samkvæmt alþjóðalögum að tryggja að lög þeirra, stefnur og verklag leiði ekki til aukinnar hættu á að brotið sé á mannréttindum innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Skrifaðu undir ákall um að Trump forseti virði mannréttindi innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd og hætti við þau áform um vísa fjölda fólks úr landi.

Ekvador

Binda þarf enda á notkun gasbruna í Amazon-skóginum

Stjórnvöld í Ekvador hafa ekki framfylgt dómsúrskurði sem féll í vil níu baráttustúlkna og ungra kvenna um að binda enda á notkun gasbruna í Amazon-skóginum. Gasbrunar brjóta á réttindum íbúa nærliggjandi svæða vegna mengunar sem þeir valda. Skrifaðu undir ákall og krefstu þess að forseti Ekvador hrindi af stað áætlun um að stöðva notkun gasbruna (sérstaklega þeirra sem staðsettir eru 5 km frá byggð) í samræmi við dómsúrskurð, verndi mannréttindi íbúa sem búa í grennd við gasbruna, stuðli að réttlátum orkuskiptum þar sem dregið verður smám saman úr notkun jarðefnaeldsneytis.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.