Arsalan Khodkam hlaut dauðadóm fyrir „njósnir“ eftir óréttlát réttarhöld sem stóðu yfir í 30 mínútur. Dómurinn var byggður á játningu sem náð var fram með pyndingum. Hann hefur ekki fengið að velja sér lögfræðing. Dauðadómur fyrir njósnir brýtur gegn alþjóðalögum.
Fjölskylda Arsalan Khodkam hefur frá árinu 2018 reynt að vekja athygli á óréttlátum dómi og hvatt ýmsar ríkisstofnanir til að grípa inn í án árangurs.
Arsalan Khodkam var handtekinn 23. apríl 2018 á herstöð í Urumieh þar sem hann starfaði sem liðsforingi í Írönsku byltingavörðunum (IRGC). Hann var sakaður um njósnir fyrir Kúrdíska lýðræðisflokkinn í Íran (KDPI) og átti að hafa aðstoðað flokkinn í vopnuðum aðgerðum þeirra gegn Revolutionary Guards. Arsalan neitar þessum ásökunum. Samkvæmt upplýsingum Amnesty International hafði hann samskipti við ættingja sinn sem er meðlimur í Kúrdíska Lýðræðisflokknum í eitt skipti til að upplýsa hann um fyrirhugaða áætlun Írönsku byltingavarðanna um að brjóta á bak aftur friðsamleg mótmæli í Bane, kúrdísku svæði.
Rannsóknir Amnesty International gefa til kynna að Arsalan hafi verið pyndaður í marga daga og skrifað undir játningu eftir að kona hans var sett í varðhald.
Pyndingar brjóta gegn alþjóðalögum og eru ólöglegar undir öllum kringumstæðum. Játningar sem nást fram með pyndingum má ekki nota í réttarhöldum.
Amnesty fordæmir dauðarefsinguna og er alfarið á móti henni í öllum tilfellum undir öllum kringumstæðum.
Skrifaðu undir og krefstu þess að íranska ríkið ógildi dóminn gegn Arsalan og tryggi honum réttlát réttarhöld.