Kína

Kína: Leyfið fjölskyldusameiningu Úígúra

Aðför Kína gegn minni­hlutahóp Úígúra í Xinjiang-héraði hefur leitt til þess að foreldrar hafa orðið viðskila við börn sín. Með þinni undir­skrift getum við komið í veg fyrir aðskilnað barna frá foreldrum sínum.

Mihriban Kader og eigin­maður hennar Ablikim Memt­inin flúðu frá Xingjiang til Ítalíu árið 2016 eftir áreitni og þrýsting lögreglu um að láta vega­bréf sín af hendi. Börn þeirra voru skilin eftir í umsjá ömmu sinnar og afa sem átti aðeins að vera tíma­bundið, en stuttu síðar var amman tekin í fanga­búðir og afinn yfir­heyrður af lögreglu.

Mihriban Kader og Ablikim Memt­inin fengu leyfi frá ítölskum yfir­völdum til að fá börnin til sín í nóvember 2019. Til að sækja um ítalskt land­vist­ar­leyfi þurftu börnin fjögur, sem eru á aldr­inum tólf til sextán ára, að ferðast án fylgdar full­orð­inna um langa leið til ítalska sendi­ráðsins í Sjanghæ til að fá vega­bréfs­áritun.

Því miður voru þau tekin af lögreglu­yf­ir­völdum og færð á munað­ar­leys­ingja­hæli og heima­vist­ar­skóla í Xinjiang.

Saga þess­arar fjöl­skyldu er ekki einstök. Foreldrar sem eru í minni­hlutahóp Úígúra og búsettir erlendis þurftu mörg hver að skilja eitt eða fleiri börn eftir í umsjá ættingja í Xinjiang. Sumir þessara foreldra hafa svo komist að því að börnin hafa verið flutt nauðug á ríkis­rekin munað­ar­leys­ingja­hæli eða heima­vist­ar­skóla í kjöl­farið af hand­töku ættingj­anna.

Þessi aðför gegn minni­hlutahóp Úígúra í Xinjiang hefur komið í veg fyrir að foreldrar geti snúið til Kína að sinna börnum sínum. Sömu­leiðis er nær ómögu­legt fyrir foreldrana að fá börnin til sín vegna þess að börnin fá ekki vega­bréf  eða þau hafa verið tekin af þeim.

Krefstu þess að kínversk stjórn­völd leyfi Úígúrum búsettum erlendis að fá börnin til sín.

Fleiri sögur aðskildra fjöl­skyldna Úígúra má finna hér.

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Rússland

Fólk fangelsað fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu

Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.

Kólumbía

Verndum mannréttindafrömuði í Kólumbíu

Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó

Stöðvið þvingaða brottflutninga í Kolwezi

Að svara eftirspurn heimsins eftir kopar og kóbalti er íbúum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó dýrkeypt. Þeir eru beittir þvinguðum brottflutningum og ofbeldi ásamt því að heimili þeirra eru eyðilögð. Skrifaðu undir ákall um að Tshisekedi forseti stöðvi þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámur.

Venesúela

Leysið úr haldi ranglega fangelsaða Venesúelabúa

Í nýrri skýrslu Amnesty International fordæma samtökin kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro í Venesúela og greina frá málum níu einstaklinga sem sæta varðhaldi að geðþótta. Skrifaðu undir og krefstu tafarlausrar lausnar þeirra án skilyrða.

Ísrael

Stöðva þarf tæknivædda aðskilnaðarstefnu gegn Palestínubúum

Palestínubúar berjast gegn andlitsgreiningartækni sem er notuð til að takmarka grundvallarréttindi þeirra. Tækni getur bætt aðgengi að námi, heilbrigðisþjónustu, upplýsingum og veitt fólki aukin tækifæri óháð uppruna þess. Ekki skal beita tækninni til að áreita og jaðarsetja Palestínubúa í þeim tilgangi að framfylgja aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Skrifaðu undir bréf til framleiðenda andlitsgreiningartæknibúnaðarins og krefstu tafarlausrar stöðvunar á framleiðslu á tæknibúnaði sem notar andlitsgreiningu og lífkenni.