Seðlabanki Írlands verður að hafna ísraelskum ríkisskuldabréfum
Írland verður að sjá til þess að Seðlabanki Írlands hætti að stuðla að sölu ísraelskra ríkisskuldabréfa innan Evrópusambandsins. Útboðslýsing er forsenda þess að hægt sé að bjóða verðbréf til sölu til almennings. Seðlabanki Írlands þarf bæði að neita að samþykkja nýja útboðslýsingu fyrir ísraelsk ríkisskuldabréf og jafnframt hafna beiðni um að fela öðru ríki innan Evrópusambandsins að samþykkja hana. Að öðrum kosti er hætta á að írsk stjórnvöld verði samsek í hópmorði Ísraels á Palestínubúum á Gaza.
Sala á bréfunum stuðlar að fjármögnun hópmorðs
Sala á ísraelskum ríkisskuldabréfum aflar fjármuna fyrir ísraelsk stjórnvöld og stuðlar þannig að fjármögnun hópmorðs Ísraels á Palestínubúum á Gaza þar sem heilu fjölskyldurnar hafa verið þurrkaðar út og borgaralegir innviðir lagðir í rúst. Um 90% íbúa Gaza hafa verið hraktir frá heimilum sínum og mörg heimili þeirra eru rústir einar.
Lúxemborg samþykkti útboðslýsingu fyrir sölu á ríkisskuldabréfunum innan Evrópusambandsins. Gildistími hennar rennur út 31. ágúst 2026 en vegna þrýstings hefur Lúxemborg tilkynnt að ríkið muni ekki taka að sér að samþykkja nýja útboðslýsingu.
Írland gegnir lykilhlutverki
Írland er heimaaðildarríki ísraelsku ríkisskuldabréfanna. Það þýðir að ríkið gegnir lykilhlutverki í því ferli sem þarf að fara fram til að hægt sé að bjóða skuldabréfin til sölu innan Evrópusambandsins. Seðlabanki Írlands verður því bæði að neita að samþykkja nýja útboðslýsingu og hafna beiðni um að fela öðru ríki innan Evópusambandsins að samþykkja hana.
Ljóst er að ein skilvirkasta leiðin til að stöðva hópmorðið á Palestínubúum á Gaza er að hindra fjármögnun þess. Að leyfa sölu ísraelskra ríkisskuldabréfa í Evrópu er pólitísk ákvörðun.
Vertu hluti af lausninni.
