Marokkó

Marokkó: Blaðamaður áreittur af stjórnvöldum

Þann 29. júlí 2020 var blaða­mað­urinn Omar Radi hand­tekinn og ákærður fyrir að grafa undan þjóðarör­yggi og fyrir nauðgun. Marokkósk stjórn­völd hafa áreitt hann síðan skýrsla frá Amnesty Internati­onal sem birt var í júní 2020 sýndi fram á að njósnað hefði verið um hann í gegnum síma hans. Omar Radi hefur verið ötull gagn­rýn­andi ríkis­stjórn­ar­innar og hefur rann­sakað spill­ingu stjórn­valda.

Omar Radi er rann­sókn­ar­blaða­maður og aðgerðasinni frá Marokkó. Hann er stofn­andi og blaða­maður á Le Desk, óháðri marokkóskri frétt­a­síðu. Hann hefur unnið með ýmsum fréttamiðlum og sérhæft sig í stjórn­málum, meðal annars samskiptum stjórn­mála­manna og yfir­stéttar­fólks í Marokkó og spill­ingu stjórn­valda.

Omar Radi var yfir­heyrður sjö sinnum í Casa­blanca. Fyrsta yfir­heyrslan var þann 25. júní 2020 og stóð sú yfir­heyrsla yfir í meira en fimm klukku­tíma. Þar var Omar sakaður um að hafa tekið við greiðslum frá erlendum leyni­þjón­ustu­að­ilum. Hann var yfir­heyrður sex sinnum í júlí og í kjöl­farið ákærður meðal annars fyrir kynferð­is­lega árás, nauðgun og að grafa undan þjóðarör­yggi. Rétt­ar­höldin yfir honum eiga að hefjast 22. sept­ember næst­kom­andi.

Omar hefur áður verið áreittur af stjórn­völdum. Nú síðast þann 17. mars 2020 hlaut hann fjög­urra mánaða skil­orðs­bundinn fang­els­isdóm og sekt fyrir að gagn­rýna á Twitter þungan dóm sem Hirak El-Rif aðgerða­sinnar hlutu.

Skrifaðu undir og hvettu marokkósk stjórn­völd til að fella niður ákærar er varða þjóðarör­yggi en rann­saka vel og vand­lega ásökun um nauðgun. Krefstu þess að Omar verði látinn laus á meðan rétt­ar­höld standa yfir.

Lestu nánar um stöðu tján­ing­ar­frelsis í Marokkó

Tengt efni

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Rússland

Afnema verður ritskoðunarlög sem kæfa andóf

Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.

Ísrael

Tryggja þarf mannúðaraðstoð til Gaza

Skrifaðu undir og krefstu þess að forsætisráðherra Ísraels komi í veg fyrir að mannúðarneyðin aukist enn frekar og framfylgi úrskurði Alþjóðadómstólsins með því  að tryggja mannúðaraðstoð og læknisaðstoð fyrir alla íbúa Gaza í samræmi við alþjóðalög.

Kólumbía

Verndum mannréttindafrömuði í Kólumbíu

Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó

Stöðvið þvingaða brottflutninga í Kolwezi

Að svara eftirspurn heimsins eftir kopar og kóbalti er íbúum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó dýrkeypt. Þeir eru beittir þvinguðum brottflutningum og ofbeldi ásamt því að heimili þeirra eru eyðilögð. Skrifaðu undir ákall um að Tshisekedi forseti stöðvi þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámur.

Venesúela

Leysið úr haldi ranglega fangelsaða Venesúelabúa

Í nýrri skýrslu Amnesty International fordæma samtökin kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro í Venesúela og greina frá málum níu einstaklinga sem sæta varðhaldi að geðþótta. Skrifaðu undir og krefstu tafarlausrar lausnar þeirra án skilyrða.

Ísrael

Stöðva þarf tæknivædda aðskilnaðarstefnu gegn Palestínubúum

Palestínubúar berjast gegn andlitsgreiningartækni sem er notuð til að takmarka grundvallarréttindi þeirra. Tækni getur bætt aðgengi að námi, heilbrigðisþjónustu, upplýsingum og veitt fólki aukin tækifæri óháð uppruna þess. Ekki skal beita tækninni til að áreita og jaðarsetja Palestínubúa í þeim tilgangi að framfylgja aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Skrifaðu undir bréf til framleiðenda andlitsgreiningartæknibúnaðarins og krefstu tafarlausrar stöðvunar á framleiðslu á tæknibúnaði sem notar andlitsgreiningu og lífkenni.