Hvíta-Rússland: Verndið friðsama mótmælendur
Myndir og skýrslur sem varpa ljósi á ómannúðlegt lögregluofbeldi gegn friðsömum mótmælendum í Hvíta-Rússlandi, bæði á götum úti og í varðhaldi, hafa verið í fréttum um allan heim.
Myndir og skýrslur sem varpa ljósi á ómannúðlegt lögregluofbeldi gegn friðsömum mótmælendum í Hvíta-Rússlandi, bæði á götum úti og í varðhaldi, hafa verið í fréttum um allan heim.
Óeinkennisklæddir lögreglumenn handtóku Nicmer Evans, stjórnmálafræðing, þann 13. júlí 2020 í Caracas í Venesúela. Þeir eru liðsmenn öryggissveitar hersins (DGCIM) og annarrar sérdeildar innan hersins (CICPC).
Elżbieta Podleśna er baráttukona fyrir mannréttindum í Póllandi sem berst fyrir réttlátu og jöfnu samfélagi í Póllandi. Hún hefur barist gegn mismunun og hatri í mörg ár.
Ný þjóðaröryggislög fyrir Hong Kong voru samþykkt í Kína þann 30. júní 2020 og tóku gildi sama dag. Kínversk yfirvöld samþykktu lögin án þess að tryggja gagnsæi eða ábyrgðarskyldu, aðeins nokkrum vikum eftir tilkynningu um fyrirætlanir sínar. Farið var fram hjá löggjafarvaldi Hong Kong og orðalagið í lögunum var haldið leyndu fyrir almenningi þar til þau tóku gildi.
Ekkert hefur heyrst frá Qurban Mamut síðan í nóvember 2017. Hann er Úígúri og fyrrum ritstjóri Xianjiang Civilization, sem fjallar um menningu og sögu Úígúra í Xianjiang í Kína. Qurban Mamut heimsótti son sinn, Bahram Sintash, í Bandaríkjunum í febrúar 2017. Sonur hans, sem er bandarískur ríkisborgari, telur að faðir sinn hafi verið handtekinn fyrir það eitt að eiga ættingja sem býr utan Kína þar sem hann frétti í september 2018 að faðir sinn hefði verið færður í svokallaðar endurmenntunarbúðir. Hann hefur miklar áhyggjur af föður sínum vegna aldurs og líkamlegs ástands. Amnesty International hefur skráð fleiri tilfelli þar sem fólk frá Xianjiang hefur verið sent í endurmenntunarbúðir fyrir að eiga ættingja erlendis.
Þann 4. júní síðastliðinn kom út skýrsla Sameinuðu þjóðanna um ástand mannréttinda á Filippseyjum. Þar er greint frá aftökum án dóms og laga ásamt öðrum mannréttindabrotum í nafni svokallaðs „stríðs gegn fíkniefnum“ sem Duterte forseti landsins stendur fyrir auk árása gegn fjölmiðlum, mannréttindafrömuðum og pólitískum aðgerðasinnum.
Íbúar Hong Kong eru beittir ofbeldi af lögreglu í friðsælum mótmælum. Þörf er á óháðri rannsókn á lögregluofbeldi á svæðinu.
Saïkou Yaya Diallo, aðgerðasinni og aðstoðarmaður lögfræðings hjá stjórnarandstöðuflokknum National Front for the defense of the constitution (FNDC) var handtekinn þann 7. maí og settur í varðhald í Conakry, höfuðborg Gíneu, í kjölfar atviks sem átti sér stað á blaðamannafundi hjá stjórnmálaflokknum. Þann 12. maí var hann kærður fyrir líkamsárás, ofbeldi, hótanir og óspektir á almannafæri. Saïkou er með sykursýki sem krefst sérstaks mataræðis og meðhöndlunar og því í áhættuhópi vegna kórónuveirufaraldursins. Sama dag staðfestu stjórnvöld í Gíneu 58 tilfelli af COVID-19 smitum í fangelsinu og þrjú dauðsföll af völdum veirunnar.
Tatyana Revva, læknir frá Volgograd í suðurhluta Rússlands á yfir höfði sér málaferli sem gætu leitt til þess að hún missi lækningaleyfið í kjölfar þess að hún kvartaði yfir skorti á hlífðarbúnaði og öðrum vandamálum tengdum kórónuveirufaraldrinum á spítalanum þar sem hún starfar.
Árásir gegn fjölmiðlafólki og gagnrýnendum stjórnvalda vegna viðbragða við kórónuveirufaraldrinum hindra að hægt sé að takast á við hann. Amnesty International varar við ritskoðun á mikilvægum upplýsingum um faraldurinn um heim allan og kallar eftir því að stjórnvöld setji lýðheilsu í forgang fram yfir verndun orðspors síns.
Fram kemur í ársskýrslu Amnesty International fyrir árið 2019 að mótmælendur í Afríku sunnan Sahara hafi barist fyrir réttindum sínum gegn átökum og kúgun þrátt fyrir hættu á skotárásum eða barsmíðum. Í skýrslunni er greint frá mótmælum og harkalegum viðbrögðum stjórnvalda, mannréttindabrotum og átökum víðsvegar á svæðinu. Herjað var á aðgerðasinna og fjölmiðlafólk og þúsundir óbreyttra borgara þjáðust vegna átaka.
Þann 18. apríl 2020 voru 15 leiðtogar og aðgerðasinnar handteknir fyrir ólöglega samkomu sem átti sér stað sex mánuðum áður. Þetta er nýjasta dæmið um hvernig lögreglan reiðir sig á óskýr lög um allsherjarreglu sem voru mikið notuð árið 2019 til að koma í veg fyrir fjölmenn og friðsæl mótmæli. Þessar handtökur eru þungt högg fyrir tjáningarfrelsið í Hong Kong.