Síur í notkun

197 niðurstöður

Raða eftir
  • Gínea: Veikur aðgerðasinni í haldi

    Saïkou Yaya Diallo, aðgerðasinni og aðstoðarmaður lögfræðings hjá stjórnarandstöðuflokknum National Front for the defense of the constitution (FNDC) var handtekinn þann 7. maí og settur í varðhald í Conakry, höfuðborg Gíneu, í kjölfar atviks sem átti sér stað á blaðamannafundi hjá stjórnmálaflokknum. Þann 12. maí var hann kærður fyrir líkamsárás, ofbeldi, hótanir og óspektir á almannafæri. Saïkou er með sykursýki sem krefst sérstaks mataræðis og meðhöndlunar og því í áhættuhópi vegna kórónuveirufaraldursins. Sama dag staðfestu stjórnvöld í Gíneu 58 tilfelli af COVID-19 smitum í fangelsinu og þrjú dauðsföll af völdum veirunnar.

  • Rússland: Læknir á yfir höfði sér málaferli

    Tatyana Revva, læknir frá Volgograd í suðurhluta Rússlands á yfir höfði sér málaferli sem gætu leitt til þess að hún missi lækningaleyfið í kjölfar þess að hún kvartaði yfir skorti á hlífðarbúnaði og öðrum vandamálum  tengdum kórónuveirufaraldrinum á spítalanum þar sem hún starfar. 

  • Afríka: Átök og kúgun leiða til mannréttindabrota

    Fram kemur í ársskýrslu Amnesty International fyrir árið 2019 að mótmælendur í Afríku sunnan Sahara hafi barist fyrir réttindum sínum gegn átökum og kúgun þrátt fyrir hættu á skotárásum eða barsmíðum. Í skýrslunni er greint frá mótmælum og harkalegum viðbrögðum stjórnvalda, mannréttindabrotum og átökum víðsvegar á svæðinu. Herjað var á aðgerðasinna og fjölmiðlafólk og þúsundir óbreyttra borgara þjáðust vegna átaka.

  • Hong Kong: 15 lýðræðiskjörnir leiðtogar handteknir

    Þann 18. apríl 2020 voru 15 leiðtogar og aðgerðasinnar handteknir fyrir ólöglega samkomu sem átti sér stað sex mánuðum áður. Þetta er nýjasta dæmið um hvernig lögreglan reiðir sig á óskýr lög um allsherjarreglu sem voru mikið notuð árið 2019 til að koma í veg fyrir fjölmenn og friðsæl mótmæli. Þessar handtökur eru þungt högg fyrir tjáningarfrelsið í Hong Kong.

  • 20 sigrar í mannréttindabaráttunni

    Samstaða er mikilvæg á þessum óvissutímum þegar kórónuveirufaraldurinn geisar. Á tímum sem þessum er mikilvægt að horfa á það jákvæða og sjá hverju samtakamátturinn getur áorkað. Á síðustu mánuðum hafa ýmsir sigrar unnist í mannréttindabaráttunni. Það er mikilvægt að fagna hverjum sigri og ekki síst núna þegar kvíðinn og óttinn er skammt undan. Hér eru 20 sigrar sem sýna fram á samtakamáttinn í mannréttindabaráttunni. Fjölmargir aðgerðasinnar hafa verið leystir úr haldi, löggjöfum hefur verið breytt í þágu mannréttinda og dómar mildaðir.

  • Filippseyjar: Forsetinn fyrirskipar að skjóta til að drepa

    Forseti Filippseyja Duterte hefur fyrirskipað lögreglu, hermönnum og opinberum fulltrúum í héruðum landsins að skjóta „vandræðagemlinga“ sem mótmæla á meðan á sóttkví stendur nú þegar kórónufaraldurinn geisar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Filippseyjum hafa 17 þúsund einstaklingar verið handteknir fyrir brot gegn útgöngubanni. Það hefur þveröfug áhrif til verndar heilsu almennings þar sem aukin smithætta er í fangavist.

  • Bangladess: Pólitískur leiðtogi í hættu á að vera tekinn af lífi

    ATM Azharul Islam, leiðtogi í stjórnarandstöðunni í Bangladess er í yfirvofandi hættu á að vera tekinn af lífi eftir að stjórnvöld landsins gáfu til þess heimild þann 16. mars 2020. Hann var dæmdur til dauða í desember 2014 af stríðsglæpadómstól og umsókn um áfrýjun í máli hans var hafnað í lok október 2019. Amnesty International og fleiri mannréttindasamtök hafa ítrekað bent á galla á málsmeðferð ATM Azharul Islam sem leiddi til þessa gríðarlega ranglætis.