Loftslagsráðstefna COP28 og mannréttindi
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP28, fer fram dagana 30. nóvember til 12. desember í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þar koma saman 198 ríki og aðilar til að takast á við loftslagsvandann. Staða mannréttinda í Sameinuðu arabísku furstadæmunum verður einnig í sviðsljósinu þar sem hún getur haft áhrif á hvernig ráðstefnan gengur.

