Yfirlýsing ungliðahreyfinga vegna frumvarps um breytingar á útlendingalögum
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International hélt opinn fund síðastliðinn fimmtudag, 6. júní. Á fundinum var yfirlýsing Andófs gegn nýju frumvarpi um breytingar á útlendingalögum lögð fram og ungliðahreyfingin samþykkti yfirlýsinguna heilshugar. Þrettán ungliðahreyfingar skrifa undir yfirlýsinguna og leggja fram kröfu um að að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Hér að neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni.

