Sigrar ársins 2021
Mannréttindabarátta Amnesty International hefur skilað miklu árið 2021 um heim allan. Lögum hefur verið breytt til samræmis við mannréttindi og samviskufangar leystir úr haldi. Hér má sjá yfirlit yfir helstu sigra ársins.
Mannréttindabarátta Amnesty International hefur skilað miklu árið 2021 um heim allan. Lögum hefur verið breytt til samræmis við mannréttindi og samviskufangar leystir úr haldi. Hér má sjá yfirlit yfir helstu sigra ársins.
Taktu þátt og skrifaðu undir 10 áríðandi mál einstaklinga sem beittir eru alvarlegum órétti. Þannig söfnum við milljónum undirskrifta og mögnum saman þrýsting á stjórnvöld víða um heim sem brjóta mannréttindi.
Hópur fólks í tækniháskólanum METU í Ankara í Tyrklandi var sýknaður þann 8. október sl. fyrir þátttöku í gleðigöngu í háskólanum í maí 2019. Árið 2020 var málið hluti af árlegri herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi. Um heim allan gripu 445.000 einstaklingar til aðgerða og kröfðust sýknunar. Amnesty International fagnar þessum sigri þótt málaferlin hefðu aldrei átt að eiga sér stað.
Nú er undirbúningur hafinn fyrir árlegu alþjóðlegu herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi sem ýtt verður úr vör síðar á árinu. Árið 2020 söfnuðust fjöldi undirskrifta í herferðinni til stuðnings málum tíu þolenda mannréttindabrota. Á Íslandi söfnuðust 70.405 undirskriftir en á heimsvísu var gripið til tæplega 4,5 milljóna aðgerða í heildina. Þessi gífurlegi samstöðumáttur hefur nú þegar skipt sköpum. Okkur hafa borist nokkur gleðitíðindi vegna framfara í málum frá herferðinni í fyrra.
Nýverið höfum við fengið tvær góðar fréttir sem tengjast okkar árlegu herferð Þitt nafn bjargar lífi. Khaled Drareni, blaðamaður frá Alsír, er nú laus úr haldi með skilyrðum. José Adrián, sem var aðeins 14 ára þegar hann var beittur lögregluofbeldi í Mexíkó, hefur nú fengið skaðabætur frá ríkinu um fimm árum síðar. Mál hans var hluti af herferðinni árið 2019 þar sem krafist var réttlætis fyrir hans hönd.
Háteigsskóli og Alþjóðaskólinn á Íslandi eru Mannréttindagrunnskólar ársins 2020 og hlutu nú í febrúar viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í grunnskólakeppni Íslandsdeildar Amnesty International og titilinn Mannréttindagrunnskóli ársins. Þetta er þriðja árið í röð sem skólarnir sigra keppnina hvor í sínum flokkinum. Þá hlutu Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn á Húsavík viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í framhaldsskólakeppni samtakanna.
Þitt nafn bjargar lífi 2020 gekk vonum framar en samtals söfnuðust 70.405 undirskriftir til stjórnvalda á vefsíðu Íslandsdeildar Amnesty International sem er rúmlega það markmið sem deildin stefndi að og er met í fjölda rafrænna undirskrifta á vefsíðunni fyrir þessa árlegu herferð.
Íslandsdeild Amnesty International skorar á ungmenni á aldrinum 16-25 ára að taka þátt í mannréttindaáskorun! Hefur þú áhuga á mannréttindum? Búðu til stutt vídjó, í verðlaun er úlpan Dyngja frá 66° NORÐUR.
Gustavo Gatica var 21 árs þegar hann blindaðist í mótmælum í Síle af völdum lögreglu. Mál hans er eitt af málunum okkar í ár í árlegri herferð okkar Þitt nafn bjargar lífi. Í fyrstu vildu yfirvöld ekki taka ábyrgð og gáfu til kynna að mótmælendur hefðu sjálfir slasað Gustavo. Amnesty International rannsakaði harkaleg viðbrögð yfirvalda við fjöldamótmælin sem hófust í október 2019. Í kjölfarið hóf ríkissaksóknari að rannsaka málið. Gustavo skrifar hér um málið sitt. Hann lýsir því hversu mikið stuðningur hefur skipt hann máli og hvernig það er að venjast nýju lífi.
Áfrýjunardómstóll í Suður-Súdan felldi úr gildi dauðadóm yfir Magai Matiop Ngong sem var aðeins 15 ára þegar brotið átti sér stað. Mál hans hefur verið sent áfram til hæstaréttar til að kveða upp viðeigandi dóm í stað dauðadómsins. Magai var fluttur af dauðadeild þann 29. júlí. Magai var dæmdur fyrir morð árið 2017 sem hann sagði að hefði verið slys. Hann fékk ekki lögfræðing við fyrstu réttarhöldin.
Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu eru Mannréttindaframhaldsskólar ársins 2019 og hlutu nú í febrúar viðurkenningu og verðlaunagrip fyrir frammistöðu sína í skólakeppni Íslandsdeildar Amnesty International, Mannréttindaframhaldsskóli ársins, sem haldin er árlega í tengslum við herferðina Þitt nafn bjargar lífi.
Íslandsdeild Amnesty International varð þess heiðurs aðnjótandi að taka við Lúðrinum, íslensku auglýsingaverðlaununum fyrir bestu sjónvarpsauglýsingaherferð í flokki almannaheilla árið 2019, við hátíðlega athöfn á Nordica þann 6. mars síðastliðinn. Verðlaunin voru veitt fyrir árlega herferð samtakanna, Þitt nafn bjargar lífi sem fram fór á síðustu mánuðum ársins 2019.