Ísland: Samstöðufundur með afgönskum borgurum
Síðastliðinn laugardag komu aðgerðasinnar saman víða um heim til að sýna afgönskum borgurum samstöðu. Refugees in Iceland, No borders og Solaris stóðu fyrir samstöðufundi hér á landi og mættu einnig aðgerðasinnar frá Ungliðahreyfingu Íslandsdeildar Amnesty International og grasrótarhópi sem kallar sig Samstaðan. Samstöðufundurinn hófst með kröfugöngu frá Hlemmi niður að Austurvelli. Opið var fyrir óformleg ræðuhöld sem endaði með afgönskum hópsöng sem snerti hjörtu viðstaddra á Austurvelli.

